44
Leitaraðferðir
Leitaraðferðir (e. i
nquiry based learning
) eru kennsluaðferðir sem leitast við að
fylgja reglum vísinda með því afla upplýsinga, greina þær og nýta á skipulegan
hátt. Eins og gengur um kennsluaðferðir skarast þær töluvert við aðrar aðferðir
sem hér hafa verið raktar, leitarnám byggir oft á samvinnu og þemabundinni
nálgun og samvinnunám og þemavinna snúast oft um leit í vísindalegum anda.
Leitarnám ýtir undir forvitni nemenda, hvetur þá til heilabrota og að spyrja
spurninga. Það stuðlar ennfremur að frumkvæði og sjálfstæðum vinnubrögð-
um og hvetur nemendur til gagnrýninnar hugsunar. Öll þessi atriði eru einkenni
skapandi skólastarfs.
26
Í leitarnámi vinna nemendur oftast í hópum við tilraunir og gagnaöflun til að
svara ákveðinni spurningu. Þeir hjálpast svo að við að greina gögnin og ákveða á
hvaða hátt niðurstöður athugana verða birtar. Verkferli svona vinnu tekur tölu-
verðan tíma og krefst þess að samvinnan sé góð.
27
Frekar en að meta sjálfar niðurstöður tilrauna eða kannana í leitarnámi ætti mat
kennara, og nemenda, ef því er að skipta, á vinnu sem þessari einkum að felast
í því að skoða hve vel nemendur unnu saman og meta hvort þeir geti rökstutt
niðurstöður sínar á greinandi hátt.




