Previous Page  41 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 41 / 108 Next Page
Page Background

39

ÞEMU, SÖGURAMMAR, SAMVINNA OG LEIT :

SKAPANDI SKÓLI

Púslaðferðin

Í stuttu máli byggjast áherslur púslaðferðarinnar á að hver og einn gegni

ákveðnu lykilhlutverki í samstarfi um öflun og miðlun þeirra upplýs-

inga sem þarf að safna saman til að allir aðilar búi að verkefni loknu

yfir heildaryfirsýn og upplýsingum um viðfangsefnið. Allir í hópnum fá

afmarkað svið að fjalla um, afla sér „sérfræðiþekkingar“ um þann hluta

viðfangsefnisins og miðla henni til hinna í hópnum. Áður en að því kem-

ur eiga þeir samráð við aðra sérfræðinga á sínu sviði og skila þeirri vinnu

heim í sinn hóp. Þannig verður til heildstæð þekking með framlagi allra

í hópnum.

Hér má taka einfalt dæmi af kennslu um Vesturfara þar sem nemendur

eiga að afla allra upplýsinga af vef Ríkisútvarpsins um þá. Efninu á vefn-

um er skipt í fimm áhugaverða þætti og hópur fimm nemenda skiptir

þeimmeð sér, hver nemandi verður sérfróður um einn þáttinn og miðlar

hinum af þeirri reynslu. Verkaskipting er ekki alltaf jafn einföld og í

þessu dæmi en fjalla má um ótal viðfangsefni á svipaðan hátt, deila efni

á félaga í hópi eða niður á hópa eftir atvikum. Aðferðin hefur reynst vel

í samfélagsgreinum og í náttúrufræði en hana má líka nota við tungu-

málavinnu og margt fleira.

Þegar púslaðferðinni er beitt er hentugt að notast við eftirfarandi tíu

skrefa vinnuskipulag:24

1.

Nemendum er skipt í hópa, svonefnda púslhópa. Í Vesturfara-

verkefninu væri lagt upp með fimm nemenda hópa með hliðsjón af

fjölda efnisþátta í vefnum um Vesturfara.

2.

Einn í hverjum hópi er formlegur leiðtogi púslhópsins.

3.

Verkefni þessarar lotu í skólastarfinu er skipt upp í fimm hluta og

liggur beinast við að fara eftir efnisþáttum Vesturfaravefsins:

Aðdragandi

Brautryðjendur

Landnámið

• Nýtt samfélag

• Nútíminn