Previous Page  37 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 37 / 108 Next Page
Page Background

35

ÞEMU, SÖGURAMMAR, SAMVINNA OG LEIT :

SKAPANDI SKÓLI

lögð áhersla á leikræna tjáningu og ritun. Oft eru persónur teiknaðar og klipptar

út, settar saman úr ýmsum efnum og hengdar á spjöld og veggi eða þeim komið

fyrir í tilbúnu umhverfi en fara má margar fleiri leiðir við miðlun og tjáningu.

Í seinni tíð er líka gripið til stafrænna miðla og handhægra verkfæra sem fylgt

hafa tæknivæðingu í skólum.

Hægt er að nota aðferðina á nánast hvaða viðfangsefni sem er og flétta allar

námsgreinar inn í vinnuna, bæði bóklegar og verklegar. Sterk hefð er fyrir því að

láta íslenskukennslu, hvort sem um er að ræða málfræði, stafsetningu, ritun eða

bókmenntir, vera veigamikinn og sýnilegan þátt í allri vinnunni og myndmennt

kemur oft við sögu. Samfélagsgreinar og náttúrufræði leika oft stór hlutverk en

aðrar greinar eiga líka fullt erindi í þessa vinnu og fremur einfalt er fyrir kennara

að semja sjálfir söguramma um það efni sem þeir vilja taka fyrir. Á fylgivef

bókarinnar er bent á dæmi um söguramma og eyðublað sem kennarar geta notað

undir sína eigin ramma.

Misjafnt er eftir umfangi hvers viðfangsefnis og þroska og getu nemendahópsins

hversu langan tíma þarf að áætla í svona vinnu en gera má ráð fyrir að meðal-

vinnutími nemenda í hverjum söguramma sé um 20 kennslustundir. Að sama

skapi er misjafnt hversu langan tíma þarf í hvern lið sögurammans fyrir sig en

Söguþráður

Lykilspurningar

Hvað er gert? Hvernig gert?

Afurð

Markmið Efni og áhöld

Áætlaður tími

Persónur

skapaðar

Who is coming to the party?

How many are invited? How

old are they, what are their

names, how do they know

each other?

How old is the birthday-

child? What is her/his

name? What kind of family

does he/she have? What do

they do …?

How is a birthday party?

What do you do in such

a party? What do you eat,

what games can you play, do

you know any songs that are

sung …?

Lykilspurningum

varpað fram og

umræða um þær.

Í kjölfarið fara

allir að skapa

sínar persónur

(dúkkulísuform

fylgir).

Kennarinn leiðir

umræður og

skrifar lista með

uppástungum

nemenda.

Einstaklingsvinna.

Listi með þeim orðaforða

sem kom út úr spurn-

ingunum um veisluna

hengdur á vegg.

Persónur skapaðar.

Hver nemandi ákveður

hvað hans persóna heitir

og aldurinn, auk þess

sem útbúinn er „svefn-

poki“ þar sem helstu

upplýsingar um viðkom-

andi persónu koma fram

(form fylgir).

Svefnpokinn hengdur á

vegg með dúkkulísunni í.

Að virkja nem-

endur til náms

með sköpun,

samræðum á

ensku og efla

orðaforða.

Orðabækur,

myndaorðabækur,

pappi, litað karton,

skriffæri, litir, garn,

efni, skæri, tilbúnir

svefnpokar.

Gott er ef kennari

hefur útbúið

eitt sýnishorn

af persónu og

svefnpoka fyrir-

fram – getur verið

afmælisbarnið.

3–4 kennslu-

stundir.

Veggspjöld

Þeir nemendur sem eru snöggir að klára persónuna sína geta byrjað að vinna að fataspjaldi sem hengja á upp. Á það eru teiknaðar myndir af þeim fötum

sem persónur þeirra eru í (eða klippt út föt úr efni) og skrifað við hvað fötin heita.

Sem flestir nemendur ættu að vinna að þessu spjaldi en gott er að nota það sem aukaverkefni, ásamt veggspjöldum um bæinn, heimili og húsgögn og hvað-

eina annað sem unnið er með.

Allur sá orðaforði sem tekinn er fyrir í verkefninu ætti að rata upp á vegg á svona spjöldum þar sem allir geta lesið og glöggvað sig á orðunum.

Tillaga að slíkum spjöldum fyrir: föt, fjölskyldu, daga, mánuði, tölur, klukkuna, þorpið/götuna, mat, líkamann, heimilið (herbergin, húsmuni).

Ýmist eru þessi spjöld unnin meðfram annarri enskuvinnu eða heilar kennslustundir teknar markvisst í slíkar samvinnulotur.

Úr enskuefninu Let´s learn and play