37
ÞEMU, SÖGURAMMAR, SAMVINNA OG LEIT :
SKAPANDI SKÓLI
Lykilspurningar
Hér eru dæmi um
lykilspurningar
sem mætti hugsa sér í hverjum kafla
söguramma í ensku um orðaforða tengdan daglegu lífi og störfum fólks.
Að sjálfsögðu ber að leggja áherslu á að tala erlend mál þegar unnið er
eftir söguramma þar sem þau eru í brennidepli og því væru allar spurn-
ingarnar bornar upp á ensku.
1.
Hvað þarf að vera í bæ úti á landi svo að hann þjóni þörfum íbúanna?
2.
Fólkið á bak við störfin. Hverjir eru þetta?
3.
Hvernig lítur bærinn út?
4.
Hvernig er dagur í lífi persónanna?
5.
Ef þið ættuð að velja eitt atvik úr dagbók persónunnar ykkar til að leika,
hvaða atvik myndi það vera?
6.
Hvaða atburðir tengja og sameina fólk í svona bæ?
7.
Hvað þarf að gera svo að halda megi hátíð?
Um leið og lykilspurningum hefur verið svarað eða þær lagðar
fram hefjast nemendur handa við að búa til sögupersónur, í þessu
tilviki fólkið á bak við störfin í bænum úti á landi. Margir í þeim
hópi tengjast í gegnum vinnu eða fjölskyldu. Allir þurfa að vinna
einhvers staðar og smám saman eignast fólkið ákveðið líf sem
snýst annars vegar um vinnustaðinn og hins vegar um heimili
eða félagslíf. Hvert barn ákveður við hvað persóna þess á að starfa og býr til sína
spjaldbrúðu eða dúkkulísu með hliðsjón af því. Einnig er hægt að láta nemendur
draga heiti á persónu, kyn, aldur eða starf. Nemendur gefa annars persónunni
nafn, segja frá því helsta í lífi hennar, svo sem aldri, starfsheiti, fjölskylduhögum
og áhugamálum og afraksturinn er hengdur upp á vegg. Næst tæki svo við að
útbúa vinnustaði og heimili ef fara á út í það og skrifa einhvers konar starfslýs-
ingu fyrir hvern og einn. Að þessu loknu eru samdar frásagnir sem lýsa degi
í lífi hverrar persónu og þá má láta eitthvað óvænt koma upp á til að krydda
frásögnina. Því má svo fylgja eftir með leikþætti sem nemendur semja sjálfir og
byggir á einhverju því sem fram er komið eða setur tengsl á milli persóna í alveg
nýtt samhengi. Þarna gætu verið læknir, hjúkrunarfræðingur og sjúklingar sem
hittast á sjúkrahúsi bæjarins og eiga einhver samskipti. Þá er komið að því að
velja atburð til að leiða saman alla bæjarbúa og ljúka verkefninu. Ræða mætti
hátíðarhöld af einhverju tagi og fá nemendum hlutverk við skipulagningu og
framkvæmd þeirra. Ef hægt er koma því við er tilvalið að bjóða foreldrum að
vera með á sjálfri hátíðinni.




