45
ÞEMU, SÖGURAMMAR, SAMVINNA OG LEIT :
SKAPANDI SKÓLI
Aðferðir leitarnáms eru margar og fjölbreyttar. Sumar eru mjög fastmótaðar og
veita lítið svigrúm til breytinga eða nýjunga en allar eiga það sameiginlegt að
fylgja fimm grunnreglum vísindalegrar aðferðar:
1.
Rannsóknarefni og leiðarspurning
Í upphafi veltum við viðfangsefninu fyrir okkur.
Hvað skal skoða?
Hvert er vandamálið?
2.
Tilgáta og hugmyndir
Hver er líkleg lausn eða svar við spurningu okkar?
Hvaða hugmyndir höfum við um viðfangsefnið?
3.
Athugun, könnun eða gagnasöfnun
Gagnasöfnun getur farið fram með beinum tilraunum,
nákvæmum mælingum og heimildakönnun.
4.
Greining og úrvinnsla
Mælingar eða gögn eru borin saman við aðrar sambærilegar mælingar
og í kjölfarið er hægt að draga ályktanir um viðfangsefnið.
5.
Ályktanir og niðurstöður
Hér þarf að draga saman og setja fram helstu niðurstöður.
Þegar um opið leitarnám er að ræða (e.
open inquiry
) glíma nemendur við eigin
spurningar og hugðarefni. Nemendur skilgreina sjálfir ákveðið vandamál, við-
fangsefni eða spurningu og velja sjálfir þær rannsóknaraðferðir sem þeir kjósa að
beita. Í stýrðu leitarnámi (e.
guided inquiry
) fá nemendur rannsóknarspurningu
frá kennara en eiga að jafnaði val um aðferðir. Í báðum tilvikum er þó grunnregl-
um vísindalegrar aðferðar fylgt, enda veita þær nemandanum ákveðinn ramma
að vinna eftir. Hér á eftir fara þrjú dæmi um verkefni þar sem nemendur beita
vísindalegum aðferðum við nám sitt.




