41
ÞEMU, SÖGURAMMAR, SAMVINNA OG LEIT :
SKAPANDI SKÓLI
Púslhópavinnu er hægt að nota í stuttum og lengri vinnulotum allt eftir uppleggi
og viðfangsefnum. Ef um lengra verkefni er að ræða þarf að gæta þess að hópar og
hlutverkaskipting haldi sér allan tímann sem unnið er að viðfangsefninu.
Nemendur venjast fljótt þessum vinnubrögðum og vita að hverju þeir ganga
þegar ný verkefni eru lögð fyrir með þessum hætti. Hér er það samvinna allra í
hópnum sem skiptir máli því þegar upp er staðið þurfa allir að búa yfir nægilegri
þekkingu á öllum efnisþáttum til að geta greint munnlega frá niðurstöðum, skil-
að skriflegum verkefnum, tekið próf eða sýnt fram á þekkingu sína, í þessu tilviki
á sögu Vesturfaranna.
Púslaðferðina er hægt að nota með nemendum á öllum aldursstigum og gildir
hér það sem alltaf á við; miða þarf umfang og efni verkefnanna við þá færni sem
hver hópur býr yfir eða ætlast er til að hann tileinki sér. Sjónarmið af því tagi ráða
þyngd og lengd lestexta, þjálfun í heimildaleit þar sem það á við eða kostum við
framsetningu þekkingarinnar.
Nýta má púslaðferðina og aðrar aðferðir samvinnunáms á marga vegu og á vef
bókarinnar er bent á ýmsar nánari upplýsingar um slíkt.
Sjónarhorn
Þessi samvinnunámsaðferð kallar á umræður. Hún þjálfar nemendur í að rök-
ræða sín í milli og komast að sameiginlegri niðurstöðu. Ekki er gert ráð fyrir að
niðurstöður þurfi að leggja fram skriflega en auðvitað má skipuleggja vinnuna
þannig að leggja þurfi fram skriflega punkta eða greinargerð og jafnvel vinna
enn frekar með niðurstöðurnar.
1.
Áður en verkefnið sjálft hefst hafa tvö til fjögur horn eða svæði kennslu-
rýmisins, svokölluð
sjónarhorn
, verið merkt með spjöldummeð áletrunum á
borð við:
Algjörlega sammála, Sammála, Ósammála
og
Mjög ósammála
.
2.
Kennarinn kemur með staðhæfingu um vel valið álitaefni.
3.
Nemendur fá hljóðan umhugsunartíma til að taka afstöðu til staðhæfingar-
innar (þrjár til sjö mínútur eftir úthaldi og þjálfun nemenda í svona vinnu-
brögðum). Mikilvægt er að engar samræður fari fram á þessum tíma. Þeir
nemendur sem vilja geta punktað hjá sér hugleiðingar sínar varðandi efnið á
meðan umhugsunartíminn varir.
4.
Þegar umhugsunartíminn er liðinn gefur kennarinn merki og nemendur
færa sig í það
sjónarhorn
sem sýnir best afstöðu þeirra til staðhæfingarinnar,
að eigin mati.




