Previous Page  44 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 44 / 108 Next Page
Page Background

42

5.

Í hverju

sjónarhorni

fá nemendur ákveðinn tíma (fimm til tólf mínútur) til

að ræða um afstöðu sína, greina hver öðrum frá því hvers vegna þeir völdu

þetta

sjónarhorn

og komast að niðurstöðu um hvernig þeir vilja koma sam-

eiginlegri niðurstöðu hópsins á framfæri. Hér er gott að skrifa niður það sem

fram kemur þannig að ekki fari á milli mála hver niðurstaða hópsins er.

6.

Að umræðutíma í

sjónarhornunum

liðnum gerir hver hópur grein fyrir sinni

afstöðu og leitast við að skýra hana sem best. Hóparnir halda oft kyrru fyrir,

hver í sínu

sjónarhorni

á meðan á þessu stendur til að undirstrika enn frekar

sjónarmiðin sem þarna koma fram.

Hér gefst nemendum kostur á að læra að standa með skoðunum sínum, finna rök

fyrir þeim og rökræða sín á milli. Þegar að því kemur að kynna niðurstöðurnar

fyrir hinum

sjónarhornunum

er mögulega hægt að setja upp einhverja umgjörð

fyrir rökræður og önnur skoðanaskipti á milli fulltrúa frá hverjum hópi, ræðu-

keppni, málflutning, leikræna tjáningu, auglýsingar, spjöld og borða. Hægt er

að láta verkefnið spanna eina kennslustund og láta staðar numið þar eða nota

aðferðina sem nokkurs konar innlögn fyrir viðameira verkefni.

Dæmi um staðhæfingar sem gjarnan vekja umræður

og nemendur geta haft á miklar skoðanir:

Refir eru meindýr og þeim ætti að útrýma.

Strákar eru sterkari en stelpur og sjálfsagt að ráða þá

frekar en stelpur í byggingarvinnu, vegavinnu, á sjó

og í aðra líkamlega erfiðisvinnu.

Það er betra að þjást af offitu en anorexíu.

Kettir eru þægilegri gæludýr en hundar.

Ísland er öruggasta land í heiminum.

Það ætti að hækka bílprófsaldurinn upp í 18 ár.

Stelpur eru ábyrgari og varkárari en strákar og ættu

að geta tekið bílpróf fyrr en þeir.

Það er betra að búa í litlu þorpi en stórri borg.

25