Previous Page  38 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 38 / 108 Next Page
Page Background

36

ætla má í hann allt frá hálfri kennslustund upp í eina og hálfa klukkustund eftir

viðfangsefnum hverju sinni. Hægt er að vinna svona verkefni einu sinni í viku

yfir langan tíma, ef innra skipulag skóla býður ekki upp á annað, en yfirleitt gefst

best að vinna það nokkuð þétt, þannig að það nái yfir fjórar til sex vikur alls.

Með því byggist upp ákafur vinnuandi í nemendahópnum og áhugi og kraftar

nemenda nýtast til fulls allt ferlið.

Sögurömmum lýkur jafnan með einhvers konar uppskeruhátíð. Það getur verið

sýning á afrakstri vinnunnar fyrir aðra nemendur skólans eða foreldra, leiksýn-

ing á sal upp úr efni og vinnu rammans, hátíð í skólanum eða sérstakir við-

burðir innan bekkjar, eitthvað á borð við bæjarhátíð, þorrablót, afmælisveislu,

ljóðalestur eða tónleika í beinum tengslum við efni þess ramma sem unnið var

með. Mikilvægt er að leggja alúð við þennan lokahnykk því hann setur í sam-

hengi alla þá vinnu sem lögð hefur verið í verkefnið, líkt og borði sem bundinn

er í snotra slaufu utan um spennandi pakka.

Vinnubrögð

Vinna eftir söguramma hefst á því að kennarinn leggur

fyrir nemendahópinn nokkrar opnar spurningar, lykil-

spurningar, sem nemendur svara út frá því sem þeir vita,

halda eða ímynda sér að geti verið. Öll svör eiga rétt á sér

og á meðan á þessari þankahríð hópsins stendur skrifar

kennarinn tillögur nemenda upp á töflu eða stórt blað.

Hægt er að vinna með svörin og tillögurnar á margan

hátt. Ákveða má saman hvaða atriði ætti helst að

athuga og hverju má sleppa, velja hluti til að kanna

nánar og fletta upp í bókum eða á netinu eða skrifa

niður það sem nánar er vitað um valdar tillögur.

Hlutverk kennarans í þessu er að halda utan um vinnuna hjá hópnum og aðstoða

við það sem þarf en ekki að vera uppspretta upplýsinga og þekkingar fyrir nem-

endur að sækja sér efnivið. Kennarinn leggur svo sífellt fram nýjar lykilspurn-

ingar eftir því sem sögunni vindur fram og nýir kaflar taka við.