34
Söguaðferðin
Söguaðferðin (e.
storyline
), stundum kölluð skoska aðferðin, er heildstæð þema-
kennsluaðferð sem þróuð var af kennurunum Steve Bell, Sallie Harkness og Fred
Rendell ásamt mörgu fleira skólafólki í Skotlandi og tengist kennaramenntun við
Jordanhill í Glasgow. Þetta þróunarstarf á sér langa sögu og má rekja allt aftur á
miðjan sjöunda áratug liðinnar aldar. Íslendingar komu snemma til skjalanna og
hafa tekið þátt í alþjóðlegri samvinnu um söguaðferðina frá því að það hófst en
formlegt alþjóðastarf um aðferðina tók að mótast á níunda áratug síðustu aldar.
19
Skipulag söguramma
Í stuttu máli gengur söguaðferðin út á að fjalla um valda efnisþætti með opnum
spurningum þar sem nemendur leita svara og setja þau í samhengi með því að
móta um efnið sögu. Unnið er eftir ákveðnu skipulagi sem sett er upp í svo-
kallaða ramma. Fleiri dæmi um söguramma má finna á vef bókarinnar. Efni
sögurammanna er í meginatriðum eftirfarandi og er hver vinnulota byggð á
sams konar skipulagi:
Vinnubrögðin eiga að vera fjölbreytt og skapandi en auk upplýsingaleitar í bóka-
kosti, af neti eða annars staðar eru, nemendur hvattir til að nýta fyrirliggjandi
reynslu og þekkingu, ímyndunarafl og sköpunarkraft. Öll þekkingaratriði eru
færð í búning sögunnar og oft unnið með alla þætti á myndrænan hátt. Einnig er
1. Söguefni
Hvaða umhverfi á að vera um söguna (til dæmis
bæjarsamfélag, íbúðablokk, vinnustaður eða land-
svæði) og um hvaða meginefni á hún að snúast
(til dæmis líf í sveit, þjóðgarða, heilsugæslu,
landnám, geimferðir um sólkerfið, klausturlíf eða
galdraofsóknir).
2. Lykilspurningar
Spurningar sem laða fram svör frá nemendum og
mynda þannig efnivið í söguna sem unnið er með.
3. Vinna nemenda
Umræður, þankahríð, öflun upplýsinga, textagerð,
föndur við gerð persóna, hluti og sviðsmyndir, leik-
lestur, upptökur og þar fram eftir götum.
4. Vinnufyrirkomulag
Hópvinna, paravinna, einstaklingsvinna, all-
ur bekkurinn hjálpast að eða fleiri koma til.
Stundum er leitað út fyrir veggi skólans að efni
og stuðningi.
5. Afrakstur tíma eða vinnulotu
Veggmyndir, dagbókarfærslur, útvarpssögur,
leikþættir, bæklingar, líkön, vefir, samantektir
og annað þess háttar.
6. Efniviður og áhöld
Allur sá efniviður og búnaður sem nota þarf
við vinnu í hverjum þætti; skæri, lím, litir, blöð
og í seinni tíð myndavélar, upptökutæki, snjall-
símar, spjaldtölvur og annað þess háttar.




