33
ÞEMU, SÖGURAMMAR, SAMVINNA OG LEIT :
SKAPANDI SKÓLI
eitthvað sé nefnt. Kennsluaðferðirnar eru fjölbreyttar og er þar jöfnum höndum
beitt hópastarfi, hreyfingu, ritun, sýnikennslu, umræðum, fræðslumyndum og
verklegum æfingum. Námsefnið sem lagt er til grundvallar spannar breitt svið;
allt frá hefðbundinni kennslubók í landafræði til tímarita um ferðamennsku,
kvikmyndar og vefefnis um útivist og fjallamennsku – auk þess sem þema-
námslotunni lýkur með gönguferð og útilegu með það að markmiði að nem-
endur nýti sér þá þekkingu og kunnáttu sem þeir hafa aflað á meðan á þema-
vinnunni stóð.
Þemadagar
Margir skólar kjósa að brjóta árlega upp skólastarfið með því að halda þemadaga
sem ná yfir öll aldursstig. Misjafnt er hvort hvert aldursstig hefur sitt sérstaka
þema að vinna út frá eða hvort allur skólinn gengur út frá sama viðfangsefninu.
Einnig er allur gangur á því hvort bekkjum er blandað saman innan árganga eða
aldursstiga eða hver bekkjardeild látin halda sér. Stundum er öllum aldursstig-
um blandað saman í hópa og unnið með viðfangsefnin þvert á aldur frá 1. upp
í 10. bekk.
Áherslur í skólastarfinu breytast talsvert á slíkum þemadögum, þar sem hefð-
bundnar kennslubækur, stundatöflur og annað fast skipulag skólastarfsins vík-
ur fyrir flæðandi vinnu nemenda og verklegir og listrænir þættir ráða ríkjum
umfram það sem venjulegt er. Nemendum er skipt í hópa eftir öðrum leiðum en
annars tíðkast og þannig fá margir sem aldrei hafa áður unnið saman tækifæri
til að kynnast og mynda tengsl í gegnum fjölbreytt og skapandi verkefni. Margir
nemendur fá hér tækifæri til að sýna sínar sterku hliðar, leiðbeina öðrum og oft-
ast eru einhverjir sem koma kennurum sínum á óvart með leikni sinni á ákveðn-
um sviðum sem ekki hafa fengið að skína og njóta sín í skólastarfinu. Hér er líka
tækifæri fyrir kennara, og jafnvel annað starfsfólk skólans, til að sýna á sér nýjar
og óvæntar hliðar, spila á gítar og stjórna samsöng, kenna rússnesku, bókagerð
eða jóga, svo eitthvað sé nefnt. Þetta getur verið kunnátta og færni sem engan
hefði grunað að kennararnir byggju yfir og kærkomin tilbreyting fyrir alla aðila.
Þegar þemavinna er skipulögð er þannig mikilvægt að hafa í huga áhugasvið og
færni hvers og eins kennara eða starfsmanns ekkert síður en nemenda og íhuga
hvernig kunnátta þeirra getur nýst á skemmtilegan hátt í skólastarfinu í því
uppbroti og þeirri lærdómsnámu sem þverfaglegri vinnu er ætlað að vera. Á
vef bókarinnar er að finna útfærslu á skipulagi þemavinnu þar sem haldnir eru
sérstakir þemadagar.




