32
Oft þarf ábendingar, leiðarvísa, leiðsögn og hvatningu þegar nemendur standa
frammi fyrir misvísandi upplýsingum eða tapa áttum og góðar verkefnaúrlausn-
ir frá fyrri hópum geta hjálpað þeim að átta sig á markmiðum með vinnunni.
Eins og í annarri kennslu má alltaf hafa hugmyndina um vinnupalla sem hér var
nefnd í inngangsköflum í huga. Ekki má heldur skilja það sem hér að ofan segir
þannig að ekki sé hægt að nýta námsbækur við þemanám. Að sjálfsögðu er hægt
að nota kennslubækur og annað námsefni sem heimildir og jafnvel útgangspunkt
við þemavinnuna.
Þemanám getur teygt sig yfir allt litróf jarðlífsins – og lengra. Þar er hægt að
fjalla um tilfinningar, hollustuhætti, prjónaskap, rafmagn, landafræði, stríð og
frið, þróun lífsins, mannslíkamann, hjálparstarf, Ísland áður fyrr, matarmenn-
ingu, Afríku, rithöfunda og aðra listamenn, hreinlæti, trúarbrögð, endurvinnslu,
byggingarlist, eldgos, þrælahald, hringleikahús, risaeðlur, Sturlungaöld, stærð-
fræði, drauga, kreppur, tónlistarstefnur, málmsmíði, íþróttir, barnabókmenntir
… listinn er ótæmandi. Um öll þessi viðfangsefni er til námsefni af einhverju tagi
sem nýta má við vinnuna og oftast hafsjór af öðru efni. Hægt er að nefna bæk-
ur, dagblöð og tímarit, yfirlitsrit og alfræðirit, myndabækur og kvikmyndir, alls
konar safnkost og sýningar, afþreyingarefni og leiki, og ekki síst stafrænt efni á
netinu. Skólasöfn eða upplýsingaver geta veitt dýrmætan stuðning og þá skiptir
góður undirbúningur máli því oft er vandasamt að finna efni við hæfi nemenda,
ekki síst þeirra yngri. Stundum má líka hafa stuðning af fólki í umhverfi barna
og unglinga og grennslast fyrir um áhugavert efni þá leiðina. Sumir skólar hafa
komið á þeirri hefð að vera með eitt eða tvö þemaverkefni á misseri byggð á sam-
vinnu kennara þvert á bekki og námsgreinar. Nemendum vex ásmegin í þessari
vinnu ár frá ári og við suma skóla eru elstu nemendurnir látnir fást við viðamikil
þemaverkefni á lokaári sínu við skólann og kynna þau á margvíslegan hátt fyrir
félögum sínum, kennurum og gestum.
Þemalotur
Sumir skólar skipuleggja starf sitt þannig að megnið af námi og kennslu vetr-
arins fer fram í þemalotum. Þá eru þær námsbækur sem til eru og varða efni
þemans beint eða óbeint lagðar til grundvallar við upplýsingaöflun en vinnu-
brögð og úrvinnsla látin taka mið af flestum þeim námsþáttum sem vinna skal
með á námstímanum samkvæmt námskrá. Ágætt dæmi um svona vinnubrögð
má finna í skipulagi kennslu á unglingastigi í Sjálandsskóla en þemakennsla
er einmitt eitt af meginsérkennum þess skóla.18 Gott dæmi um spennandi við-
fangsefni er þemað
Upp um fjöll og firnindi
þar sem áttundubekkingar læra um
notkun landakorta, áttavita, ábyrga ferðamennsku, hreinlæti og skyndihjálp, svo




