Previous Page  33 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 33 / 108 Next Page
Page Background

31

ÞEMU, SÖGURAMMAR, SAMVINNA OG LEIT :

SKAPANDI SKÓLI

Þemanám

Þemanám felur að jafnaði í sér að nemendur læra um ákveðið viðfangsefni með

því að fást við marga þætti þess í senn, oft í gegnum beina reynslu, í stað þess að

vinna með efnisþætti á einangraðan hátt. Oftast felur vinnan það í sér að nem-

endur safna upplýsingum um efnið, flokka þær svo, tengja eða flétta þær saman

á nýjan hátt og skrá eða miðla niðurstöðum þannig að úr verður heildstæð þekk-

ing á efninu sem yfirleitt nær dýpra en þegar unnið er með viðfangsefnið í hefð-

bundnum verkefnum um afmörkuð efni eða fengist við þau með lestri námsbóka.

Yfirleitt nær þemanám að samþætta fjölda námsgreina þannig að inn í námið

fléttast greinasvið á borð við stærðfræði, íslensku og jafnvel erlend mál, sam-

félagsgreinar, náttúrufræði og lífsleikni, list- og verkgreinar ásamt upplýsinga-

tækni og stafrænni miðlun, og er þá ekki allt nefnt. Þemanám getur líka falið

í sér sérstaka afmörkun á völdu greina- eða efnissviði, svo sem fjallað um þátt

kvenna í íslenskri bókmenntasögu, snúist um ákveðin form eða valda liti í mynd-

list, tekið fyrir lífshætti spendýra í sjó, farið yfir ákveðna landshluta eða beinst að

tilteknu tímabili í kvikmyndasögunni.

Þemanám felur yfirleitt í sér að nemendur þurfa að leita margra leiða við efnis-

öflun og þekkingarleit, og stundum feta óhefðbundnar slóðir í þeim efnum,

hringja í fyrirtæki eða senda bréf, skoða sýningu eða heimsækja safn, fletta

blöðum og tímaritum, taka viðtöl eða fara á vettvang til þess að fá upplýsingar

um viðfangsefnið. Þegar slík upplýsingaleit hefur farið fram þurfa nemendur að

finna leiðir til að setja saman heildstæða mynd af efninu byggða á því sem þeir

hafa komist að og að lokum ákveða með hvaða hætti þeir geti best komið þekk-

ingu sinni og niðurstöðum á framfæri.

Mikill hluti þemanáms fer fram í hópvinnu. Nemendur skipta með sér verkum

og raða svo saman þekkingarbútum eftir því sem vinnunni vindur fram. Í sum-

um tilfellum kemur kennarinn að borðinu með svipaða forþekkingu og nemend-

ur. Hlutverk hans er fyrst og fremst að vera verkstjóri en ekki að miðla fróðleik.

Kennarinn skipuleggur verkefnið og aðstoðar nemendur við upplýsingaleit, hvet-

ur þá áfram og heldur utan um verkið. Þannig má segja að nemendur og kennari

afli saman upplýsinga um efnið.

17

Ef kennari er sjálfur fróður um efnið þarf hann

að gæta þess að halda að nemendum fjölbreyttum aðferðum við upplýsingaleitina

og ekki koma með lausnirnar sjálfur. Galdur þemanáms felst í glímunni við við-

fangsefnin. Það að þurfa að opna hugann og finna nýjar og fjölbreyttar aðferðir

til að afla upplýsinga, vinna úr þeim og setja þær fram dýpkar að lokum þá þekk-

ingu sem til verður um efnið, auk þess að skilja eftir sig fjölbreytta reynslu og

þekkingu á ýmsu öðru sem á veginum verður í vinnuferlinu.