30
Þegar talað er um fjölbreytta kennsluhætti er vísað til margvíslegra kennslu-
aðferða, skipulags af hálfu kennara og viðfangsefna nemenda.
15
Oft er talað
um hefðbundna kennsluhætti annars vegar og óhefðbundna, opna eða
sveigjanlega kennsluhætti hins vegar og kemur þá upp í huga flestra reyndra
kennara ákveðin mynd úr skólastarfinu; hefðbundnir kennsluhættir vísa í
námsbókatengda vinnu þar sem nemendur sitja í sætum sínum og hlusta, eða
fylla út vinnublöð og verkefnabækur, og kennarinn er uppi við töfluna að
ræða kennsluefnið eða fylgjast með verkefnavinnunni.
Þegar um sveigjanlega kennsluhætti er að ræða má sjá fyrir sér nemendur
víðs vegar um kennslurýmið, jafnvel að fást við mismunandi viðfangsefni og
kennara sem gengur á milli og aðstoðar þar sem þarf. Allt skipulag kann að
virðast laust í reipunum og erfitt getur verið að koma auga á viðfangsefni
kennslustundarinnar í fljótu bragði. Engu að síður grundvallast árangur af
sveigjanlegum kennsluháttum á því að undir liggi gott skipulag. Viðfangsefn-
in þurfa að vera skýr og markmiðin ljós. Vinnuna má hins vegar nálgast á
marga vegu og aðferðir geta tekið mið af þörfum, getu og áhuga einstakling-
anna sem fást við viðfangsefnin.
Hugtakið kennsluaðferð hefur stundum verið skilgreint sem „það skipulag
sem kennarinn hefur á kennslu sinni, samskiptum við nemendur, viðfangs-
efnum og námsefni í því skyni að nemendur læri það sem að er keppt“.
16
Til
eru margar tegundir þekktra aðferða við skipulag náms og kennslu og má
sem dæmi nefna söguaðferðina, samvinnunám, leitarnám, lausnaleitarnám
og landnámsaðferð. Allt eru þetta aðferðir og efnistök í kennslu þar sem til-
tölulega skýrum og hnitmiðuðum vinnubrögðum er beitt og hægt er að fylgja
nokkuð skýru ferli í gegnum þau verkefni sem lagt er upp með. Aftur á móti
kjósa margir kennarar að beita sem fjölbreyttustum aðferðum og flétta þær
saman, jafnvel í einni og sömu kennslustundinni.
Í þessum kafla verður fjallað um nokkrar aðferðir sem kennarar geta beitt við
kennslu sína. Aðferðirnar eru ólíkar innbyrðis en stuðla allar að samræðu og
samvinnu meðal nemenda, gagnrýninni hugsun og skapandi vinnubrögðum.
Nefnd eru dæmi um viðfangsefni en hafa ber í huga að aðferðunum er öllum
hægt að beita í glímu við nánast öll viðfangsefni á öllum skólastigum. Aðeins
þarf að laga viðfangsefni og aðferð að þeim áherslum og því aldursstigi sem
ætlunin er að vinna með hverju sinni.
Þemu, sögurammar, samvinna og leit




