Previous Page  75 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 75 / 108 Next Page
Page Background

73

TÆKNI OG TJÁNING :

SKAPANDI SKÓLI

Upplýsingaefni

Bæklingar, fréttablöð, efnisvefir og rafbækur

Eins og flestir kennarar þekkja er hægur vandi að útbúa bæklinga og fréttablöð

með til þess gerðum hugbúnaði ef ekki skortir hugmyndir að efni í texta og

myndum. Samt þarf að gæta að smekkvísi og vönduðum frágangi, kenna nem-

endum að standa vel að verki. Það er hollt fyrir nemendur á öllum aldri að fást

við umbrot, myndskurð, grafík og slíka hluti og mikilvægt líka að rækta með

þeim metnað hvað snertir málfar og stafsetningu. Verkefninu má líka gefa aukið

gildi með því að láta nemendur sjálfa spreyta sig á teikningu og ljósmyndun í

stað þess að tína til tilbúið myndefni. Hanna má útlit titla, heimatilbúna grafík,

hausa og merki. Efnisgerð eins og þessa má setja í alls konar samhengi og tengja

til dæmis þemanámi og sögurömmum. Fréttablað gæti verið frá Sturlungaöld

og flutt váleg tíðindi af átökum, greint frá nýju handriti, skipskaða og matjurta-

rækt í klaustri. Bæklingur gæti verið eftir áhugafólk um endurheimt votlendis,

sérlundaðan sveppafræðing eða kappsaman landvörð sem vill koma í veg fyrir

utanvegaakstur. Nú er líka nánast leikur einn að búa til einfalda en tilkomumikla

efnisvefi á til þess ætluðum vefsetrum og áhugavert fyrir nemendur að setja upp

á myndskreyttum vefsíðum umfjöllun um áhugavert efni tengt námi eða áhuga-

máli. Rafbækur hafa svo rutt sér til rúms á seinni árum. Þær geta verið gagn-

virkar og teflt frammyndskeiðum, hljóðupptökum, skjásýningum, spurningum,

þrautum og jafnvel leikjum. Sumar tegundir rafbóka bjóða upp á undirstrikanir,

orðskýringar og glósugerð og er þá stundum unnt að lýsa upp texta eða skrifa

inn athugasemdir á spássíu. Ýmis tól hafa komið út til þess ætluð að búa til raf-

bækur og tilvalið að láta nemendur spreyta sig á því. Bækurnar geta fjallað um

áhugamál á borð við fimleika eða fótbolta, efni sem nemendur eru að glíma við í

skólanum, geymt ýmis nemendaverk eða verið farvegur fyrir sögugerð og skáld-

skap. Fjallað er nánar um þetta efni og handhæg verkfæri á fylgivef bókarinnar.

Spjöld og töflur á vegg og vef

Veggspjaldagerð á sér langa hefð í skólastarfi og margvísleg efnisgerð önnur

fólgin í alls konar föndri til útstillingar upp um hillur, glugga og veggi. Afrakstur

nemendavinnu setur oft hlýlegan og líflegan svip á ganga, stofur og sali og gildi

þess háttar verkefna og miðlunar á þeim verður seint metið til fulls. Eins og í allri

sköpun skiptir máli að vanda til verka og gæði í undirbúningi og kennslu skila

sér oft í áhugaverðum og heillandi verkum eftir nemendur. Stafræna tækni má

nýta við hugmyndavinnu og efnisöflun, við gerð leiðbeininga fyrir nemendur, til

að miðla til foreldra og annarra því sem vel tekst og stundum líka til að fást við