72
Samfélagsmiðlar
Samskipta- og félagsmiðlar í kennslu
Margar tækninýjungar hafa ekki náð almennri rótfestu í grunnskólum lands-
ins þrátt fyrir miklar vinsældir og notkun bæði kennara og nemenda heima
fyrir ogutan skólaveggja.Dæmi umþetta er notkun samskipta- og félagsmiðla
(e.
social media
). Á síðari árum hafa þó æ fleiri kennarar gert tilraunir með
notkun slíkra miðla, einkum á unglingastigi grunnskóla, enda sumir þessara
miðla háðir aldurstakmörkum. Samskiptamiðlar geta létt kennurum störfin
og höfða vel til flestra nemenda. Bent hefur verið á að í samfélagsmiðlum nái
kennari til unglinga á vettvangi sem þeir kjósa sjálfir að nota.
33
Hópasíður kennara og nemenda
Með því að stofna hópasíður í samfélagsmiðlum fyrir bekki eða námshópa má
koma ýmsu efni á framfæri við nemendur, opna fyrir umræður þeirra á milli
um námsefnið, virkja þá til upplýsingaöflunar og miðlunar upplýsinga, setja inn
myndir, myndbúta og jafnvel viðameira efni tengt námsefninu. Flestir nemenda-
hópar ráða vel við að vinna í gegnum slíkar síður og sé tilgangur með stofnun
hópsins ljós frá upphafi og friðhelgisstillingar þannig að enginn utan hópsins
komist inn á síðuna ætti ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að óæskileg skörun
verði á milli persónulegrar notkunar kennara á miðlinum og þeirrar síðu eða þess
hóps sem hann hefur stofnað fyrir námshópinn. Hins vegar hefur það sýnt sig að
að nemendur virðast síður fara inn á sérstakar hópasíður stofnaðar á vegum skóla
en hópasíður sem þeir sjálfir hafa stofnað.
34
Einnig þarf að hafa í huga að ekki allir
nemendur nýta samskiptamiðla og sumir kjósa að halda sig utan við slík sam-
skiptanet og getur þá þurft aðrar aðferðir til að koma til móts við þá nemendur.
Efnismiðlun af öllu tagi
Ýmis vefsetur með aragrúa áskrifenda bjóða upp á einfaldar leiðir til að miðla og
deila með öðrum teiknivinnu og ljósmyndum, skjákynningum og kvikmynda-
efni, tónlist, þrívíddarteikningum, textílhönnun, hljóðfæraleik, prjónaskap, mat-
argerð og ótal öðru efni. Sum eru beinlínis til þess ætluð að fjalla um valin áhuga-
svið og geta verið öflug leið til að sinna áhugamáli, koma verkum á framfæri,
þjálfa færni eða verða margs vísari. Þetta geta bæði nemendur og kennarar fært
sér í nyt innan skóla og utan og haft af bæði gagn og gaman. Kennarar geta verið
nemendum góð fyrirmynd með því að sækja upplýsingar og hugmyndir í svona
gagnalindir hvenær sem við á og nýta kosti þeirra á jákvæðan hátt.




