71
TÆKNI OG TJÁNING :
SKAPANDI SKÓLI
Þrep 2
Ritvinnsluforrit ásamt frekari tækni, myndvinnsluforriti, töflureikni,
vafra og leitarvélum á netinu, er notað til að móta og bæta texta, búa til
eða leita uppi og setja inn myndir, hanna myndrit til að styðja við text-
ann og leggja inn tengla til frekari upplýsingar þar sem við á. Verkefnið
er prentað út og vistað. Nemandi skilar kennara pappírseintaki eða staf-
rænu skjali og stundum hvoru tveggja.
Þrep 3
Nemandi notar alla þá tækni sem býðst og skilar kennara til dæmis
myndskreyttri skjákynningu, laglegum vef eða stafrænni bók sem býður
upp á gagnvirkni og margmiðlun en ýmsar hugbúnaðar- og veflausnir
má nota við slíka efnisgerð. Skjákynninguna, vefinn eða bókina er tæp-
ast hægt að skoða að gagni nema á skjá eða tjaldi og sjaldnast er efnið
prentað út. Borðtölvan, fartölvan, spjaldtölvan eða snjallsíminn hafa
tekið við keflinu að fullu, gagnvirkur og margvíður texti frá nemandan-
um birtist í stafrænum búnaði og þangað er hann sóttur.
Þrep 4
Nemandi nýtir alla miðlunarkosti líkt og áður en færir sér jafnframt
í nyt ýmsar leiðir til stafrænna samskipta og samvinnu við ritun og
skipulag efnis. Skjölum á vinnslustigi má deila með öðrum með sam-
vinnuskrifum og sækja má upplýsingar, efniseiningar, tækniaðstoð, við-
brögð og uppörvun til félaga og vina á öllum stigum námsvinnunnar.
Tækifæri til miðlunar
Eins og fram hefur komið eru til ýmsar gerðir af hugbúnaði sem nota má með
nemendum til að setja saman skjákynningar, vefi, bækur á stafrænu formi, hljóð-
upptökur og kvikmyndir og fyrir allar gerðir tölva, allt frá einföldum hugbúnaði
sem hentar byrjendum yfir í flóknari kerfi fyrir lengra komna. Að búa til stafræna
kynningu eða bók getur verið góð leið fyrir nemendur til að taka saman á einn
stað það efni sem orðið hefur til við vinnu þeirra, ekki síst ef fjölbreytnin er mikil.
Framboð á hugbúnaði til að setja saman bækur og kynningar með texta, hljóðum,
gagnvirku efni og lifandi myndum er stöðugt að aukast og hægt að finna hug-
búnað sem hentar nemendum á öllum skólastigum. Til þess að nemendur dragi
sem mestan lærdóm af verkefnavinnu eins og þessari þarf þeim að vera ljóst að sú
vinna sem þeir hafa lagt á sig á að skila sér til annarra og þeir þurfa að fá að kynn-
ast sem fjölbreyttustum leiðum við að miðla þekkingu sinni þannig að aðrir njóti.
Halda má munnlega og líflega kynningu með stuðningi af skjákynningu, setja
fram líkön, útbúa vefsíður, fréttabréf og bæklinga eða búa til stutta kvikmynd, svo
nokkur atriði séu nefnd. Hér verður stiklað á stóru um nokkrar leiðir sem nem-
endur geta farið þegar nýta á tæknina í verkefnaskilum.




