Previous Page  72 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 72 / 108 Next Page
Page Background

70

Góð vinnubrögð

Þegar kennarar ákveða að nýta tæknina með nemendum sínum og gefa þeim á

þann hátt kost á að fást við fjölbreytt og merkingarbær verkefni þarf ætíð að gæta

þess vel að nemendur viti til hvers er ætlast af þeim. Gjarnan má fara með nemend-

um í gegnum það sem mætti kalla á íslensku

bestu vinnubrögðin

(e.

best practice

)

og á vef bókarinnar er að finna gátlista og ábendingar sem kennarar geta deilt með

nemendum og þeir haft til hliðsjónar við verkefnavinnuna. Gátlista og góð viðmið

í þessum efnum má svo einnig nýta við námsmat að verkefnavinnu lokinni. Þetta

getur átt við úrvinnslu upplýsinga, ritun og frágang texta, myndefni og útlitshögun

en líka höfundarrétt, persónuvernd og samskipti við aðra.

Not af tækninýjungum

Skoðum hvernig nýta má nýlega tækni á borð við rafbækur með því að setja upp

dæmi um lestur á þremur stigum:

Þrep 1

Nemandi notar spjaldtölvu til að lesa bækur líkt og hann hefði gert

áður með innbundna bók í hönd.

Þrep 2

Nemandinn notar stafrænan áherslupenna innbyggðan í rafbókarhug-

búnaðinn til að undirstrika eða lýsa upp valda staði í texta, líkt og áður

hefði verið gert með penna í hönd.

Þrep 3

Nemandinn lætur hugbúnaðinn taka saman minnismiða úr því sem

undirstrikað var eða lýst upp í rafbókinni. Myndir og fleira efni tengt

textanum kann að fylgja með í þeirri samantekt.

Ljóst er að á fyrsta þrepi hefur lítið breyst með tilkomu þessarar nýju tækni. Les-

andinn nýtir ekki þá möguleika sem bjóðast og gætu létt honum vinnu við nám.

Það er ekki fyrr en að nemandinn fer að láta spjaldtölvuna taka saman minnisblöð,

miðla hljóði og lifandi myndum eða bregðast við réttum svörum og röngum, að

nýir og öflugir möguleikar fólgnir í tækninni nýtast í reynd.

Annað dæmi um raunverulegt gildi þeirrar tækni sem ætíð er innan seilingar í

nútímaskólum má taka af nemanda með slaka rithönd:

Þrep 1

Ritvinnsluforrit er notað til að textinn sem nemandinn vill koma frá sér,

stundum í samvinnu við aðra, verði læsilegri. Textinn er sleginn inn og

stundum leiðréttur, útliti hans breytt lítillega, hann prentaður út og verk-

efninu skilað á pappír.