Previous Page  71 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 71 / 108 Next Page
Page Background

69

TÆKNI OG TJÁNING :

SKAPANDI SKÓLI

Tækni og tjáning

Upplýsingatækni og stafræn miðlun

Upplýsingatækni og stafræn miðlun eru drifin áfram af örri tækniþróun og

nýjungum. Ný tæki, nýjar hugmyndir og þróun á sviði stafrænnar tækni hafa

skapað fjölmarga nýja möguleika í skólastarfi. Stafræn tæki og tól nýtast við

margvíslega upplýsinga- og gagnaöflun, í samskiptum og tengslamyndun, við

greiningu og úrvinnslu gagna, til skapandi verka og hvers konar miðlunar.

Upplýsinga- og tæknimennt má vissulega telja afmarkað svið í skólastarfi í

ákveðnu samhengi og vissum skilningi um skipulag námsgreina en upplýs-

ingatækni og stafræn miðlun eru ekki síður þýðingarmikill hluti af flestum

þáttum nútímaskólastarfs, þar með talið öllum námsgreinum eða greinasvið-

um grunnskóla hver sem þau kunna að vera.

Erindi nýrrar tækni

Nú er ekkert lögmál að ný tækni eigi alltaf við

í námi og kennslu. Nauðsynlegt er að horfa

á notkun tækninnar á gagnrýninn hátt. Til

að fá sem mest út úr nýjum tækjum og tól-

um er mikilvægt að horfa ekki einungis á það

sem þessi nýja tækni getur komið í staðinn

fyrir eða leyst af hólmi heldur spyrja sig jafn-

framt að því hvað kunni að tapast og ekki

síst hverju tæknin bæti við. Stundum erum

við lengi að átta okkur á nýjum möguleikum

fólgnum í nýrri tækni og stundum hættir

okkur til að hefja hana umsvifalaust á stall. Í

hugum sumra var borðtölvan lengi vel lítið annað en stafræn ritvél og í fyrstu

þótti líka sumum sem spjaldtölvur væru helst til þess fallnar að geyma og

birta lesefni á handhægan hátt. En þeir eru líka til sem hneigjast til að halda

að með nýrri tækni verði allur vandi leystur innan skóla og utan og henni

fylgi stórstígar framfarir í hverju skrefi. Ávinningur af notkun þessara tækja í

skólastarfi hefur vissulega verið umtalsverður á mörgum sviðum en oft skort-

ir mikið á að tæknin sé notuð á krefjandi og skapandi hátt. Ýmsir fylgifiskar

tækninotkunar vekja líka áhyggjur og mikilvægt að gæta vel að þeim við upp-

eldi og skólastarf.