68
Hópurinn tekur svo til við að vinna að eftirfarandi atriðum undir verkstjórn
kennarans, helst í smærri hópum:
• ákveða gerð sögu (draugasaga, glæpasaga, þjóðsaga, ástarsaga, grínsaga)
• móta meginsöguþráð
• greina persónur í sögunni
• spinna söguna áfram og móta handrit
• lesa yfir handrit og gera þær breytingar sem þarf
• skipa í hlutverk og skipta verkum
• hefja æfingar og leikmynda- og búningahönnun
• sýna leikritið
Gera verður ráð fyrir nægum tíma þegar vinna á sögu og handrit frá grunni
auk þess sem nægur tími verður einnig að vera fyrir æfingar þegar þar að
kemur. Þó ber að varast að draga vinnuna um of á langinn, þá er hætt við
að nemendur missi fókusinn og verði leiðir. Ef sýningartími leikritsins er
ákveðinn strax í upphafi eða fljótlega eftir að vinnuferlið hefst blasir tak-
markið við nemendum og það kallar á agaðri vinnubrögð.
Gaman getur verið að taka upp stutta myndbúta úr öllu ferlinu við að skapa
heilt leikrit frá grunni enda ómetanlegur fjársjóður fyrir skólann og nem-
endur að eiga leikritið allt í upptöku og halda því til haga, til dæmis á skóla-
bókasafninu. Þátttakendur þreytast ekki á því að skoða slíkar myndir og þær
eru frábærar heimildir um fjölbreytt skólastarf. Ef hægt er að koma því við er
gott að taka á meira en eina vél og klippa efnið saman. Í því felst auðvitað mikil
vinna en líka nám og hana má hugsanlega fela áhugasömum nemendum.
Á vef bókarinnar má finna tengla á síður með leiklistartengdu efni, meðal
annars á vef Námsgagnastofnunar. Einnig gaf Námsgagnastofnun út ýmislegt
efni til að nota í leiklistarkennslu og þar má nefna þessa titla:
Hagnýt leiklist –
Handbók ásamt efni á geisladiski
Handbók fyrir leiklistarkennslu
Hljóðleikhúsið
Leiklist í kennslu –
Handbók fyrir kennara
Leiklist í kennslu –
Vefefni
Leiklistarsöguvefur
Leikritasmiðjan




