Previous Page  67 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 67 / 108 Next Page
Page Background

65

EITT OG ANNAÐ UM RITUN :

SKAPANDI SKÓLI

Hér eru einungis nefnd fáein dæmi um það hvernig nota má ritun sem leið til

náms og þá ekki aðeins til þess að lista upp staðreyndir, minnisatriði eða niður-

stöður. Til að semja ljóð, eins og hér að framan, þarf að setja niður fyrir sér á

óhefðbundinn máta þann fróðleik sem texti, ljósmynd, skýringarmynd, kennari,

kennslumynd eða önnur heimild hefur leitt fram. Það verða til ákveðin hugs-

anatengsl sem ekki myndast við annars konar vinnu, svo sem við það að svara

spurningum um efnið. Vinna þarf með ljóðið, form þess, lengd og merkingu og

við þá vinnu fær það sem um er fjallað nýtt og aukið vægi með þeim árangri að

þekking vex og þróast hjá nemendum með öðrum hætti en annars hefði orðið.

Um frekari hugmyndir að verkefnum og viðfangsefnum sem fylgja hugmynda-

fræði

Ritunar til náms

fyrir afmarkaða hópa og þvert á skólastarf er vísað á fylgi-

vef bókarinnar. Vert er að árétta það að hugmyndafræðinni er hægt að beita á

öllum aldursstigum og greinasviðum grunnskólans með því að laga verkefni að

getustigi nemenda og ólíkum viðfangsefnum hverju sinni.

Ritun í mörgummyndum

Mynd verður saga

Ótal skemmtilegar myndir af ýmsu tagi má finna á netinu og prenta út til að

nota í ritunaræfingar á laus blöð eða í stílabækur. Einnig er upplagt að nýta rit-

vinnsluforrit til að líma inn myndir og skrifa svo sögu eða ljóð út frá þeim beint

á tölvuna og prenta út. Fréttir, auglýsingar, viðtöl eða blaðagreinar mætti einnig

hugsa sér sem ritunarverkefni út frá myndum. Myndirnar gætu jafnvel orðið

kveikjur að heilu leikritunum!

Hér eru birtar nokkrar myndir sem eiga það sameiginlegt að sýna mat í óvenju-

legu samhengi. Byggt á hverri mynd mætti hugsa sér ákveðna sögu, annað hvort

söguna á bak við myndina eða sögu um það sem er á myndinni.