66
Hægt er að hugsa sér endalausar uppsprettur skapandi texta í skemmtilegum
myndum sem nálgast má á netinu eða taka úr dagblöðum, tímaritum og aug-
lýsingabæklingum. Þó að gaman geti verið að leyfa nemendum sjálfum að finna
slíkar myndir, fylgir því oft enn meiri spenna að sjá hvað kennarinn hefur tínt
til og fær hverjum og einum. Það getur líka verið skemmtilegt og hvetjandi fyrir
nemendur ef kennari hefur sjálfur skrifað texta út frá mynd eða ef fjallað er
með bekknum um möguleika til sögugerðar fólgna í myndunum áður en þeim
er dreift til nemenda. Nemendur búa ekki allir yfir jafn mikilli hugkvæmni og
sumum þarf að veita mátulegan stuðning.
Fleiri aðferðir en að leita uppi myndir úr blöðum eða af netinu er hægt að nota
sem skemmtilega kveikju að ritunarverkefni, hvort sem í verkefninu á að fylgja
ákveðnum fyrirmælum eða ritunin er gefin algjörlega frjáls. Hér eru hugmyndir
sem byggja á annarri nálgun.
Búningaritun
Farið er í búningageymslu skólans og nemendur velja sér fatnað og fylgihluti.
Nemendum er svo skipt í litla hópa eftir búningum sem átt geta saman og þeir
látnir stilla sér upp fyrir myndatöku, líkt og um væri að ræða atriði í leikriti.
Tekin er mynd af hverjum hópi og prentuð út eða henni dreift á tölvur í jafn
mörgum eintökum og nemendur í hópnum eru margir. Hópurinn getur valið
sameiginlega yfirskrift yfir myndina sína og svo hefjast allir handa við að skrifa
sögu tengda myndefninu. Sögurnar innan hvers hóps geta orðið ansi ólíkar og
skemmtilegt að sjá hvernig hugmyndir myndirnar kveikja.
Einnig má láta hvern hóp setja upp örstutt spunaleikrit, ekki lengra en þrjár mín-
útur, þegar í búningana er komið og skrifa svo sameiginlega sögu, ljóð eða leikrit
út frá mynd sem tekin var af hópnum á meðan á spunanum stóð. Upplagt er að
nota spjaldtölvur í tökur enda þarf þá varla að prenta myndirnar út.
Hér eru tveir félagar á góðri stund.
Annar blómkálssnjókarlinn segir hinum
sögu. Skyldi sagan vera hryllingssaga
sem endar í blómkálsgratíni? Eða eru
þeir að ræða um uppvöxt og þroska
mismunandi kálafbrigða og grænmetis
í notalegri og ilmandi mold uppi í sveit?




