Previous Page  30 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 30 / 108 Next Page
Page Background

28

Mat á kennslustund: Hvað situr eftir?

Stundum er gott að ljúka kennslustund eða kennslulotu með því að taka saman

efni hennar í nokkrum punktum. Enn árangursríkara getur verið að láta nem-

endur sjálfa hugleiða efnið með því að skrá hjá sér nokkur atriði eftir fyrirfram

gefnum aðferðum án þess að stuðst sé við kennslubækur eða annað efni. Hér eru

dæmi um slíka eftirvinnu við lok kennslustunda. Hún virkjar nemendur í að

rifja upp, leggja á minnið og hugleiða á fjölbreyttan máta það sem þeir lærðu – og

jafnvel auka enn við þekkingu sína. Þetta er góð leið fyrir kennarann til að meta

kennslustundina og greina hverju mætti breyta í framhaldinu. Ennfremur getur

slík eftirvinna nýst kennum vel til að sveigja efnið inn á brautir sem nemend-

ur sjálfir leggja til. Slíkt eykur gjarnan áhuga á viðfangsefninu, ýtir undir eigin

þekkingarsköpun og byggir upp jákvæðan námsanda í hópnum.

Þrír-Tveir-Einn

Nemendur skrá hjá sér

þrjú atriði

sem þeir lærðu,

tvö atriði

sem þeim þóttu sér-

lega áhugaverð og

eitt atriði

sem þá langar að vita meira um eða læra betur. Þessi

aðferð á vel við í lok kennslustundar, eftir upplestur, eftir fyrirlestra kennara og

samnemenda, eða eftir sýningu á kvikmynd. Þessi atriði má skrá í leiðarbók eða

á miða sem límdir eru á töflu. Með því að fara yfir svörin með nemendum getur

kennarinn metið kennslustundina og séð hvað í kennslunni mætti bæta eða hafa

með öðrum hætti.

Aðrar útfærslur á Þrír-Tveir-Einn

Nemendur skrá hjá sér eitthvað

þrennt

sem tvö atriði eiga sameiginlegt, eitthvað

tvennt

sem er ólíkt með atriðunum og

eina

spurningu sem þeir hafa varðandi

samanburð á atriðunum tveimur.

Dæmi um það sem nemendur gætu skráð hjá sér eftir samfélagsfræðitíma eða

landafræði: