Previous Page  29 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 29 / 108 Next Page
Page Background

27

ÚR VERKFÆRAKISTU KENNARANS :

SKAPANDI SKÓLI

Jarðskjálfti og rýming

14

fyrir 10–100 þátttakendur. Góð 10–15 mín-

útna æfing sem hressir og mætir hreyfiþörf

nemenda og virkjar bæði heilahvel, hvort sem

er í upphafi kennslustundar eða á miðjum

kennsludegi.

Einn nemandi stendur stakur í upphafi.

Aðrir nemendur eiga að mynda þriggja

manna hópa.

Tveir úr hverjum þriggja manna hópi mynda

hús með höndunum og sá þriðji í hópnum

er íbúi í húsinu; stendur undir því.

Nemandinn sem byrjaði stakur kallar upp

annað hvort orðið, rýming eða jarðskjálfti.

Ef kallað er, rýming, eiga allir íbúar að finna

sér nýtt hús. Ef kallað er, jarðskjálfti, hrynja

öll húsin og nemendur þurfa að mynda nýja

þriggja manna hópa með húsum og íbúum.

Í hvert skipti sem kallað er reynir nemandinn

sem er stakur og kallaði að komast í þriggja

manna hóp. Sá nemandi sem einn stendur

eftir verður sá sem kallar næst og þannig

gengur það í leiknum koll af kolli.

Ef tveir komast ekki í hóp geta þeir verið

saman í hlutverki kallarans og leitað eftir

þátttöku í hópum þegar allir fara á kreik.

• Komið þér sælar frú/fröken!

• Daginn!

• Blessaður og sæll!

• Blessuð!

• Góðan og blessaðan daginn!

• Heil og sæl!

Kaos

13

fyrir 6–20 þátttakendur. Hentar í upphafi

kennslustundar eða vinnulotu þar sem

hrista þarf saman nemendur sem ef til

vill þekkjast lítið og eiga eftir að vinna í

hópum.

Gögn: Þrír eða fjórir smáhlutir, til dæmis

boltar, baunapokar eða tuskudýr.

Nemendur mynda hring og þrír til fjórir

þeirra fá smáhlut í hendur.

Einn nemandi byrjar með því að kasta

hlut til annars nemanda, einhvers sem

ekki heldur á hlut sjálfur. Um leið segir

hann, hæ, og lætur nafn nemandans

sem grípur hlutinn fylgja því ávarpi.

Sá sem grípur svarar með því að segja,

takk, og láta fylgja nafn nemandans sem

kastaði til hans. Hann kastar svo hlutn-

um til annars nemanda, kallar, hæ, og

lætur nafn þess nemanda fylgja.

Þrír til fjórir hlutir eru í umferð í einu

og gott er að hafa nokkrar sekúndur

á milli þess sem hlutum er kastað. Í

hvert sinn sem gripið er eða kastað

fylgja ávarpsorð eins og hér var lýst.

Leikurinn stendur í nokkrar mínútur

eða þar til kennarinn segir stopp.

Þá ríkir yfirleitt nokkur ringulreið og

auðvelt að ná nemendum niður fyrir

fyrirhugaða vinnu með því að telja

þá í hópa eða skipta þeim niður með

öðrum hætti. Gaman getur verið að

setja þá reglu að alltaf þurfi að reyna

að finna nýja leið til að heilsa í stað

þess að allir noti, hæ. Hér eru nokkrar

tillögur:

• Halló!

• Komdu sæl og blessuð!

• Sæll vertu!

• Góðan dag!

• Gott kvöld!

• Sælir!