25
ÚR VERKFÆRAKISTU KENNARANS :
SKAPANDI SKÓLI
Miðakort
Þegar mörg hugtök tengjast meginhugtaki í þankahríð eða hugarkorti
geta nemendur skráð þau hugtök sem þeim koma í hug á litla miða sem
þeir svo raða saman í flokka eftir mikilvægi. Þetta veitir þeim frelsi til
að finna og endurskoða tengingar á milli flokka og auðveldar vinnuna.
Tvíhöfðakort
9
Nemendur vinna í litlum hópum eða í pörum. Þeir eiga að gera tvö eða
fleiri hugarkort um skyld viðfangsefni, oftast tvö kort sem ekki fjalla
um sama viðfangsefnið heldur tengd efni. Markmiðið er svo að tengja
kortin saman og sjá hvað þau eiga sameiginlegt. Verkefni af þessu tagi
hjálpar nemendum að greina hvað viðfangsefnin eiga sameiginlegt og
hvað greinir þau að.
Hugarkort kennarans: Gott skipulagstæki
Þegar kennarar skipuleggja verkefni sem taka munu langan tíma, svo
sem þemavinnu eða aðra samþættingu námsgreina þar sem stundum er
um mikla samvinnu milli kennara og hópa að ræða, getur verið gagn-
legt fyrir þá að nýta sér þá aðferð að setja skipulagið upp sem þrepaskipt
hugarkort. Þá má sjá framvinduna á skýran og myndrænan hátt í heild
sinni. Dæmi um slíkt hugarkort, þar sem fimm kennarar skipulögðu
vinnu sína og samkennslu nemenda í 3. og 4. bekkjum um lifnaðarhætti
á Íslandi áður fyrr, má finna á vef sem fylgir bókinni.
Hugarkort yfir taugakerfið
Miðakort
Tvíhöfðakort
Veldisaukandi kort
Köngulóarkort




