STÆRÐFRÆÐI FYRIR UNGLINGASTIG
Skali
býður upp á innihaldsríka og lifandi stærðfræðikennslu.
Nemendur öðlast bæði skilning og færni með því að vera virkir og leitandi þegar þeir vinna
við stærðfræði. Nemendur og kennarar nota
Skala
til að
lesa
stærðfræði,
vinna
verkefni,
rökræða
lausnaleiðir og fást við stærðfræðilegar áskoranir á rannsakandi og skapandi hátt.
Skali
vekur áhuga nemenda með því að tengja stærðfræði við daglegt líf og bjóða upp á
fjölbreytilega kennslu.
Í Skala er lögð áhersla á
• hið faglega innihald, rökrétta uppbyggingu námsefnisins og framvindu námsins
• skýr og nákvæm markmið
• hagnýt dæmi og verkefni
• aðlögun námsefnisins að þörfum allra nemenda í sameiginlegu námssamfélagi þeirra
• nákvæmar leiðbeiningar og stuðning við kennara sem nýtist áður en kennsla hefst,
meðan á henni stendur og eftir að henni lýkur
Skali 2
samanstendur af tveimur nemendabókum, tveimur æfingaheftum og kennara-
bókum. Kennarabækurnar eru gefnar út á heimasíðu Menntamálastofnunar og þar er
auk þess að finna verkefnahefti, lausnir og annað fylgiefni með flokknum.
Höfundar:
Bjørnar Alseth
Grete Normann Tofteberg
Ingvill Merete Stedøy-Johansen
Janneke Tangen
SKALI 2B
40048