24
Hugarkort
Hugarkort er mynd eða kort sem sýnir tengsl hugtaka og hugmynda. Oftast er
eitt meginþema eða hugtak í miðju kortsins. Nemendur nota hugarkort til að
koma skipulagi á og skrá niður eigin þekkingu og hugmyndir. Gott hugarkort
endurspeglar hugmyndir um flokkun, skipulag, skilgreiningar og margháttuð
tengsl atriða og hugtaka.
Hugarkort má til að mynda nota þegar kanna á forþekkingu nemenda, varpa ljósi
á hugtök, leggja upp kafla í ritgerð, skrá fundargerð, skipuleggja verk eða við-
burði, glósa, rifja upp og skrá niður hugmyndir í þankahríð. Hugarkort er hægt
að nota með öllum aldurshópum og við hvers konar viðfangsefni.
Kennari getur gefið nemendum nokkur stikkorð eða látið þá sjá um að skilgreina
þau. Kortið á að sýna tengingar milli flokka og atriða. Jafnvel má skýra tengsl
með útskýringum á greinum eða tengslalínum. Hugarkort eru sjónræn og mega
gjarnan vera litrík og myndræn. Nemendur geta teiknað inn eða fært inn mynd-
ir þar sem það á við og fest með því atriði kortsins í minni. Handgert hugar-
kort veitir nemandanum mikið frelsi til sköpunar en ýmis hugbúnaður og veftól
geta auðveldað gerð hugarkorta. Finna má alls konar hugbúnað til hugarkorta-
smíða eins og VUE, Prezi, Coggle og Inspiration. Einnig má setja upp hugarkort
í Powerpoint og margir kennarar hafa lært á forritið MindManager. Nánar er
fjallað um hugarkortasmíð á vef bókarinnar.




