Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 63

63
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Ítarefni
Egyptaland
Egyptaland á fimm þúsund ára menningarsögu sína að þakka ánni Níl. Í Nílardalnum þróaðist eitt af
fyrstu menningarsamfélögum í heiminum. Vegna landfræðilegrar legu Egyptalands hafa Egyptar orðið
fyrir áhrifum fjölmargra menningarstrauma sem gert hafa þjóðfélagið fjölþjóðlegt. Um landið liggur sjó-
leiðin milli Indlandshafs og Miðjarðarhafs og um það er eina landleiðin á milli Afríku og Asíu. Egyptaland
á sér langa sögu í verslun og viðskiptum.
Egyptaland er að mestu láglent. Fjalllendi er austan Nílar og á Sínaískaga, sem tilheyrir Asíu. Egyptaland
er nánast ein eyðimörk, fyrir utan Nílardalinn sem er mjög frjósamur. Þar er næstum allt ræktanlegt land
og þar býr næstum öll þjóðin. Loftslagið í Egyptalandi er heittemprað og sú litla úrkoma sem fellur í
landinu er við strönd Miðjarðarhafsins. Reglulegir þurrkar eru í landinu og þar geta geisað miklir sand-
stormar.
Egyptaland nútímans er álitið efnahagslegt og menningarlegt stórveldi arabaheimsins. Þar eru landbún-
aður og ferðaþjónusta mikilvægar atvinnugreinar. Iðnaður, sem aðallega er staðsettur í og við borgirnar
Kaíró og Alexandríu, er fjölbreyttur. Umfangsmestur er textíl- og matvælaiðnaður. Starfsemi tengd ferða-
þjónustu er einnig mikil og hafa Egyptar miklar tekjur af henni.
Samgöngunetið í landinu er ekki víðfeðmt vegna hinna víðáttumiklu eyðimarka. Helstu samgöngu-
æðarnar í Egyptalandi og lífæðar eru Nílarfljót og Súesskurðurinn. Níl hefur verið helsta samgönguæðin
um lengri tíma, þar sem siglt hefur verið með varning upp og niður ána í þúsundir ára. Súesskurðurinn,
sem grafinn var í gegnum Súeseiðið, var opnaður 1869 og tengir saman Miðjarðarhaf og Rauðahaf.
Hann er ein mikilvægasta siglingaleið í heimi, þar sem hann styttir sjóleiðina milli Evrópu og Asíu mikið. Í
kjölfar opnunar skurðarins jókst þýðing Egyptalands í heimsviðskiptum mikið.
Verkefni
1. Hvaða lönd og höf liggja að Egyptalandi?
2. Hvað er helst ræktað í Egyptalandi?
3. Hvaða þýðingu hefur Níl fyrir íbúa Egyptalands?
4. Hvað er helst ræktað í öðrum löndum í norðanverðri Afríku?
5. Hverjar eru helstu iðngreinar í Egyptalandi og hverjar eru helstu framleiðsluvörurnar?
6. Hverjar eru helstu náttúruauðlindir í Egyptalandi?
7. Hversu stór hluti landsins er eyðimörk?
8. Hvaða þýðingu hafði opnun Súesskurðarins fyrir Egyptaland?
9. Hverjir grófu Súesskurðinn?
10.
Hvað heita stærstu borgir Egyptalands?
1...,53,54,55,56,57,58,59,60,61,62 64,65,66,67,68,69,70,71,72
Powered by FlippingBook