Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 55

55
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Ítarefni
Ítarefni
Ítargrein: Frumbyggjasamfélög Mið-Ameríku
Frjósamur jarðvegur og nýjar ræktunaraðferðir sköpuðu grundvöll fyrir þróun samfélaga í Mið-Ameríku.
Mörg samfélög risu og hnigu þar til Evrópubúar birtust um aldamótin 1500 og gerðu mikinn usla. Hér
á eftir verður fjallað um fjórar merkar þjóðir er byggðu Mið-Ameríku, Olmeka, Maya, Tolteka og Azteka.
Blómaskeið þessara þjóða reis þar sem nú er Mexíkó og Gvatemala.
Olmekar
Olmekar sem taldir eru forfeður siðmenningar í Mið-Ameríku birtust fyrst í suðurhluta Mexíkó um
1150 f.Kr. Þeir mynduðu stéttir og konungdæmi, versluðu við fjarlæg ríki og höfðu mikil áhrif á önnur
samfélög. Þeir reistu mikilfengleg hof og komu sér upp talnakerfi og nákvæmu tímatali. Þeir mótuðu
jafnframt glæsilegar leirstyttur, unnu úr eðalsteinum og hjuggu út glæsilegar höggmyndir. Veldi þeirra
er talið líða undir lok um 400 f.Kr.
Mayar
Á 3. öld e.Kr. reis veldi Maya í Gvatemala og á Yucatanskaga í Mexíkó. Menning þeirra dafnaði best
í skógum þessara landa þar sem Mayar reistu mörg borgríki. Þeir voru samansafn margra þjóða með
tengda menningu, tungumál og trúarbrögð sem áttu í samkeppni hver við aðra. Fjölskyldan var
hornsteinninn í samfélaginu þar sem daglegt líf einkenndist af vinnu karlanna á ökrunum á meðan
konurnar unnu heima við vefnað, matseld og uppeldi barna. Maísrækt var undirstaða efnahagslífsins.
Stjórnendur borgríkjanna bjuggu í höllum ásamt hirðfólki sínu og þjónum og voru tilbeðnir af þegn-
um sínum eins og þeir væru guðir. Mayar eru taldir hafa verið langt á undan samtímamönnum sínum í
gamla heiminum í nákvæmni og reglufestu. Þeir bjuggu yfir talnakerfi, tímatali og eru m.a. þekktir fyrir
að hafa þróað eina ritmálið í Ameríku fyrir komu Kólumbusar, sem skýrir af hverju saga þeirra er eins
þekkt og raun ber vitni. Á 9. öld hnignaði veldi Maya.
Toltekar
Toltekar byggðu hálendi Mexíkó um svipað leyti og Ísland byggðist. Þeir voru herskáir og lögðu undir
sig lönd Maya og urðu fyrir miklum áhrifum frá menningu þeirra, ekki síst byggingarlist og myndlist.
Þrátt fyrir að vera frekar þiggjendur en gefendur í menningarlegu tilliti hefur myndlist þeirra þótt merki-
leg og byggingar þeirra þótt standast samanburð við það besta sem gert var í Mið-Ameríku á öldunum
fyrir innrásir Spánverja. Veldi Tolteka er talið hafa staðið stutt yfir, jafnvel einungis tvær aldir og liðið undir
lok er Aztekar komu á svæðið.
Aztekar
Á þeim tíma þegar Evrópubúar sigldu sínar fyrstu ferðir til Ameríku réðu Aztekar yfir megninu af
miðhluta Mexíkós og fyrrum svæðum Maya í austri. Sjálfir kölluðu Aztekar sig„mexíka“ og dregur Mexíkó
nafn sitt af þeim. Samfélag Azteka, sem höfðu ríkt á þessu svæði frá um 1200, var stéttskipt og skiptist
í fjórar stéttir, yfirsétt, alþýðustétt, ánauðuga bændur og þræla. Þeir sem voru af yfir- eða alþýðustétt
tilheyrðu ákveðnum ættflokkum sem hver um sig hafði landsvæði til yfirráða, sem skipt var niður á
fjölskyldur. Ánauðugir bændur og þrælar sáu um verkin fyrir yfirstéttina. Aztekar voru þekktir fyrir mann-
fórnir, grimmd og hernaðarlega yfirburði yfir nágrannaþjóðum sínum. Þeir byggðu hins vegar veldi sitt á
mikilli framleiðni í jarðyrkju. Þeir voru líka frægir fyrir byggingarlist og höggmyndir. Aztekar tilbáðu sólina
og byggðu á þekkingu forvera sinna um gang stjarnanna. Trúarbrögð þeirra einkenndust af mannfórn-
um guðum sínum til friðþægingar og voru þær taldar nauðsynlegar til að koma í veg fyrir að slokknaði
á sólinni. Mannfórnirnar voru óhugnanlega umfangsmiklar og er talið að allt að 150 þúsund manns hafi
verið fórnað ár hvert.
1...,45,46,47,48,49,50,51,52,53,54 56,57,58,59,60,61,62,63,64,65,...72
Powered by FlippingBook