Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 57

57
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Ítarefni
Sádi-Arabía
Ríkið Sádi-Arabía, nánast eins og við þekkjum það í dag, var stofnað árið 1932. Á 19. öld sameinuðust
arabískir þjóðflokkar með það að markmiði að varðveita
„tærleika íslam“
.
Þá bjuggu í landinu hirðingjar sem stunduðu sjálfsþurftarbúskap, ræktuðu úlfalda, sauðfé og geitur.
Nánast eina lífsviðurværið var landbúnaðarframleiðslan. Árið 1938 fundust miklar olíulindir í landinu sem
gjörbreytti efnahagsgrundvelli landsins úr fátæku hirðingjasamfélagi í ríkt olíusamfélag. Sádí-Arabía er
upphafsland íslam og eru þar tvær helgustu borgir þeirra trúarbragða, Mekka og Medina. Múhameð
spámaður, boðberi íslam, fæddist í Mekku en hraktist til Medinu þar sem hann aflaði sér fylgismanna,
múslima, en svo kallast fylgjendur íslam.
Arabíuskaginn er að mestu leyti háslétta og víðáttumikil eyðimörk, eiginlega framhald af Saharaeyði-
mörkinni en aðskilinn frá henni af Rauðahafi. Þar ríkir eyðimerkurloftslag þar sem dægursveifla hitans
getur farið úr 50°C á daginn, undir frostmark á nóttunni. Í suðurhlutanum er að finna eina stærstu sand-
eyðimörk í heimi, Rub al-Khali (Tómi hlutinn). Eiginlegar ár og vötn eru ekki til í landinu. Helstu gróður-
svæði er að finna í vinjum og er ein slík, þar sem höfuðborgin Riyadh er staðsett.
Rauðahaf liggur að landinu í vestri og Persaflói í austri. Upp af vesturströndinni rís hár fjallgarður, Hejaz
sem hallar til austurs. Austurhluti skagans er láglendur.
Olíuvinnsla og olíutengdur iðnaður er undirstaða efnahagslífsins. Sádi-Arabía er stærsti útflutningsaðili
olíu í heiminum og leiðandi í OPEC, samtökum olíuframleiðsluríkja. Olíulindirnar eru aðallega í austur-
hluta landsins, sunnan Íraks og Kúveit, og neðansjávar í Persaflóa. Ghawar-olíulindin er talin vera stærsta
olíulind heims og er áætlað að um ¼ af olíu þeirri sem notuð er í dag komi þaðan.
Með olíugróðanum var áhersla lögð á að efla iðnað í landinu. Iðnþróuninni var sérstaklega valinn staður
í og við borgirnar, Al-Jubayl við Persaflóa og Yanbu við Rauðahaf. Einnig hefur verið lögð áhersla á að
draga úr þörfinni fyrir innflutt vinnuafl, auka framleiðslu matvæla og bæta almenna menntun og heil-
brigðisþjónustu. Fjármála- og tæknigeirinn eru mikilvægar þjónustugreinar sem þjóna aðallega olíu-
iðnaðinum.
Í landinu hefur löngum verið mikil kvikfjárrækt, einkum sauðfé og geitur. Í seinni tíð hafa Sádar varið
miklu fé í að efla ýmsa ræktun. Aukna eftirspurn eftir vatni leysa þeir með ferskvatnsvinnslu úr sjó.
Vatnsveitan í Riyadh byggist á stórri ferskvatnsverksmiðju í Al-Jubayl við Persaflóa.
Svarta gullið við Persaflóa
Persaflói, oft nefndur Arabíuflói, er þekktastur fyrir auðugar jarðgas- og olíulindir, bæði á landi
umhverfis flóann og grunnt undir hafsbotninum. Á stóru svæði þekur þykkur sandur olíurík setlög
og er talið að þarna sé að finna um tvo þriðju hluta þekkts olíuforða í heiminum.
Upp úr aldamótunum 1900 fóru menn að leita að olíu í Mið-Austurlöndum og var það 1908 sem
fyrsta olíusvæðið fannst í Íran. Þá höfðu menn ekki hugmynd um hversu gríðarmiklar olíulindir
voru í jarðlögunum á Persaflóasvæðinu.
Stærstu olíulind jarðar, Ghawar, er að finna í austurhluta Sádi-Arabíu nálægt Persaflóa. Ghawar
olíulindin er um 30 km að lengd og 280 km á breidd og þekur því um 8400 km². Sádi-Arabíska
ríkisstjórnin lætur litlar upplýsingar í té um Ghawar, enda er hún helsta náttúruauðlind landsins.
Olían var uppgötvuð árið 1948 og framleiðsla, eða dæling upp úr jörðu, hófst árið 1951.
Olíulindirnar á Persaflóasvæðinu hafa oft leitt til átaka eins og raunin varð í Persaflóastríðinu
1990–1991 þegar Írakar réðust inní Kúveit. Margvísleg afskipti iðnríkja Vesturlanda hafa átt stóran
þátt í átökum í þessum heimshluta, þau hafa beinlínis haft hag af ófriði þar. Þau skiptu, á sínum
tíma, ríkjunum upp í þau sem við þekkjum í dag og styðja leynt eða ljóst tiltekin sjórnvöld eftir því
hvað hentar best hverju sinni. Þarna vega olíuhagsmunir Vesturlanda þyngst.
1...,47,48,49,50,51,52,53,54,55,56 58,59,60,61,62,63,64,65,66,67,...72
Powered by FlippingBook