Brúttólaun
fela
í sér bæði laun
og hlunnindi
ef einhver eru.
Nettólaun
eru
útborguð laun,
það er launin sem
eftir eru þegar
frádráttarliðirnir
þrír hafa verið
dregnir frá.
Skattar
eru m.a.
lagðir á laun,
á hagnað af
atvinnustarfsemi
og vexti af
bankainnistæðum.
Stéttarfélagsgjald
Algengt er að þetta
gjald sé í kringum
1% af launum.
Skattleysismörk
segja til um hve
miklar launatekjur
má hafa án þess
að þurfa að greiða
skatt.
Persónuafsláttur
er dreginn frá
útreiknuðum skatti.
Skattstofn
er sá
grunnur sem
skattur er
reiknaður af eftir
að iðgjald í lífeyris-
sjóð hefur verið
dregið frá.
Staðgreiðsla
skatta felur í sér
tekjuskatt til
ríkisins og útsvar
til sveitarfélagsins.
Kafli 1 • Persónuleg fjármál
9
Laun og tekjuskattur
Margir launþegar hafa föst mánaðarlaun en aðrir fá greitt fyrir
hverja klukkustund sem unnin er. Þeir eru þá á tímakaupi eins
og kallað er. Frá launum er dregin svokölluð staðgreiðsla skatta.
Skatthlutfallið er misjafnt eftir því hve há launin eru. Þetta hlutfall
er ákveðið af Alþingi og sett með lögum. Einnig ákveður Alþingi
hver persónuafslátturinn er hverju sinni en hann er dreginn frá
skattinum.
Börn yngri en 16 ára þurfa að greiða 6% skatt af launum umfram 180 000 á ári.
Þessi hópur fær ekki persónuafslátt. Þegar unglingur hefur náð 16 ára aldri
borgar hann skatt eins og fullorðnir.
1.2
Vikar er 15 ára og hefur fengið vinnu þar sem hann fær 980 kr. á tímann.
Hann á að vinna milli 25 og 28 klukkustundir á mánuði allt árið.
Þarf Vikar að greiða skatt? Rökstyddu svarið.
1.3
Helena, sem er 14 ára, passar barn á hverjum laugardegi allt árið í
6 klst. í senn.
Hún vinnur sér inn nákvæmlega svo mikið að hún þarf ekki að greiða skatt.
Hversu há geta tímalaun hennar verið?
Þegar finna skal út hve mikinn skatt fullorðinn einstaklingur á að borga þarf að
reikna skattstofninn. Hann finnst með því að draga iðgjaldið í lífeyrissjóð frá
brúttólaunum. Sumir launþegar fá hlunnindi (t.d. afnot af síma eða bíl) sem þeir
þurfa að borga skatt af. Þeim hlunnindum er þá bætt við brúttólaunin. Síðan er
skatturinn reiknaður út frá skattstofninum og persónuafsláttur dreginn frá
skattinum. Það sem eftir er af skattinum er síðan dregið frá skattstofninum.
Stéttarfélagsgjald er loks dregið frá og þá eru nettólaunin eftir, það er að segja
það sem launþeginn fær útborgað.
Brúttólaun
– iðgjald í lífeyrissjóð (reiknast af brúttólaunum)
+ hlunnindi
= Skattstofn
Skattstofn
– skattur að frádregnum persónuafslætti
– stéttarfélagsgjald
= Nettólaun