Previous Page  99 / 124 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 99 / 124 Next Page
Page Background

Kafli 3 • Mál og mælieiningar

97

3.97

a

Finndu hlutfallið milli lengdar 26 cm langs líkans af Ferrari-bifreið

og lengdar raunverulegs Ferrari sem er 4,66 m á lengd.

b

Líkan af báti er gert í sömu hlutföllum og Ferrari-bifreiðin í a-lið.

Um það bil hve langt er bátslíkanið þegar hinn raunverulegi bátur

er 20 fet á lengd?

3.98

Úr þessari vöffluuppskrift fást átta vöfflur.

a

Um það bil hve margar vöfflur fást ef deig er

gert úr þremur lítrum af hveiti?

b

Búa þarf til deig þannig að 22 nemendur fái

tvær vöfflur hver.

Hvernig verður vöffluuppskriftin þá?

3.99

Í sælgætisskál eru molar í sex litum.

Hlutfallið milli litanna rauður, gulur, grænn, brúnn,

svartur og appelsínugulur er 5 : 3 : 2 : 3 : 4 : 3.

Hve margir molar í hverjum lit geta verið í skálinni?

Finndu að minnsta kosti þrjú svör.

3.100

Tiltekin málmblanda er með 585‰ af gulli.

a

Hvað merkir það?

b

Hve mikið vega hinir málmarnir í gullhring

sem vegur alls 5 g?

3.101

Í gull er blandað öðrum málmum til að það verði harðara. Í slíkri blöndu er

mælieiningin karöt en þau segja til um hve mikið af hreinu gulli er í

blöndunni. Eitt karat merkir að ​ 

1

___ 

24 

​af heildarþyngdinni er gull.

a

Hve mörg grömm af hreinu gulli eru í 10 karata gullstöng sem er 240 g?

b

Hve mikið vegur 20 karata gullstöng ef hún er gerð úr 500 g af gulli?

c

Hve mörg karöt er hreint gull?

3.102

Hlutfallið milli sements, sands og vatns í steypublöndu er 25 : 95 : 70.

Hve mikinn sand og vatn þarf í 5 kg, 10 kg og 75 kg af sementi ef þessi

blanda er notuð?

Vöfflur

4 dl hveiti

5 msk. sykur

1 tsk. lyftiduft

1 tsk. kardemommuduft

4 dl mjólk

5 egg

100 g brætt smjör