Previous Page  101 / 124 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 101 / 124 Next Page
Page Background

Kafli 3 • Mál og mælieiningar

99

3.107

Eðlismassi áls er 2,7. Flugvélin A380 vegur 276 800 kg.

Af þessari þyngd er ál 60%.

Hve mikið rúmmál af áli þarf í 10 flugvélar?

3.108

Venjulegt andrúmsloft hefur eðlismassann 1,29 kg/m

3

meðaltali og koldíoxíð (CO

2

) hefur eðlismassann 1,98 kg/m

3

.

Hvað myndi gerast ef við tæmdum fötu með CO

2

í lítið herbergi?

3.109

Saltvatn hefur eðlismassann 1,025 g/ml að meðaltali en ferskvatn hefur

eðlismassann 1,000 kg/m

3

.

Hvernig aðskiljast saltvatn og ferskvatn þegar maður hellir annarri

tegundinni varlega í hina? Útskýrðu það sem gerist.

Þetta má gera sem tilraun. Settu smávegis af matarlit í aðra

vatnstegundina þannig að þú sjáir muninn á saltvatninu og ferskvatninu.

3.110

Hugsaðu þér að þú sért í fríi í Tyrklandi. Þú ætlar að kaupa þrjá boli og

tvennar buxur. Hver bolur kostar 12 evrur og hvorar buxur 29 evrur.

Þú prúttar og býður um það bil 7000 íslenskar kr. fyrir allar vörurnar.

a

Hvað þarftu þá að bjóða í evrum?

Seljandinn hafnar tilboðinu og gerir þér nýtt verðtilboð upp á 70 evrur.

b

Hvað er það mikið í samanburði við þitt tilboð?

Finndu mismuninn í evrum og í ISK.

3.111

Þú ætlar að versla á netinu og sérð sama hjólabrettið

á þremur mismunandi netsíðum. Á sænskri netsíðu er

verðið 705 SEK, á enskri netsíðu er verðið 70 GBP og

á bandarískri netsíðu er verðið 125 USD.

a

Notaðu gengistöfluna og finndu hvar hjólabrettið

er ódýrast.

b

Á Íslandi kostar hjólabrettið 12 550 kr.

Hve margar krónur geturðu sparað þér með því

að kaupa hjólabrettið á ódýrustu netsíðunni?

Gjaldmiðill

Gengi (sala)

9.8.2015

1 DKK (dönsk króna)

19,75

1 SEK (sænsk króna)

15,33

1 GBP (enskt pund)

208,11

1 EUR (evra)

147,4

1 USD (Bandaríkjadollar)

134,5

Heimild:

www.islandsbanki.is