

Kafli 3 • Mál og mælieiningar
103
Hindenburg var stærsta loftskip veraldar og var rúmmál þess 200 000 m
3
.
Það var smíðað í Þýskalandi árið 1935. Loftskip notuðu lofttegundirnar
helíum og vetni sem eldsneyti til að lyfta sér frá jörðu. Í ystu geymunum
átti að nota hið óbrennanlega helíum og í innri geymunum átti að nota
léttustu lofttegundina vetni (0,09 g/l). Árið 1936 höfðu Bandaríki Norður-
Ameríku sett verslunarbann á Þýskaland, þar með talið var helíum. Þess
vegna varð að láta hið eldfima vetni einnig í ytri geyma loftskipsins Hindenburg sem
eiginlega hefðu átt að innihalda eldtraust lag úr helíum. Í maí 1937 átti loftskipið að lenda í
New Jersey en það losnaði úr landfestunum og í því kviknaði. Í þessu slysi létust 36 manns.
3.123
Í gegnum tíðina hafa mörg ofsaveður, fellibyljir og hvirfilbyljir geisað víða
um lönd í heiminum. Notaðu netið og finndu mesta vindhraða sem var
mældur í
a
fellibylnum 1. janúar 1992 í Noregi
b
fellibylnum „Katrínu“ á Bahamaeyjum 23. ágúst 2005
c
fellibylnum „Mitch“ í Karabíska hafinu og Mið-Ameríku
26. og 27. október 1998
d
fellibylnum „Ísak“ í Louisiana í Bandaríkjunum 30. ágúst 2012
3.124
Eðlismassi helíums er 0,13456 kg/m
3
.
a
Hvert er rúmmál helíumblöðru sem vegur 1 kg?
b
Hve mikið vega allar 200 helíumblöðrurnar sem blöðrusali hefur
á boðstólum þann 17. júní? Hver blaðra er um það bil 12 dm
3
.
3.125
Vetni er léttasta efni í heimi. Lestu söguna hér á eftir og finndu massa
loftskipsins Hindenburg.
3.126
Bandarísk netsíða hefur á boðstólum sérstaka hjálmmynda-
vél fyrir 359,99 USD. Þýsk netsíða hafði þessa vöru í boði
fyrir 263,42 EUR og ensk netsíða bauð fram sams konar
hjálmmyndavél á 246,21 GBP. Til að finna út hvaða hjálm-
myndavél var ódýrust var verðinu breytt í íslenskar krónur.
Notaðu verðið til að finna gengi Bandaríkjadollars (USD),
ensks punds (GBP) og evru (EUR) þennan dag.
3.127
Íbúð í Brasilíu kostar 130 000 ríöl (BRL). Það samsvarar 4 981 938 ISK.
a
Hvert er gengi brasilíska ríalsins?
b
Finndu gengi brasilíska ríalsins gagnvart Bandaríkjadollar (USD).
1 USD = 133,69 ISK.
Gjaldmiðill Gengi Verð í ISK.
USD ($)
?
41830
GBP (£)
?
51332
EUR (€)
?
38810