Previous Page  102 / 124 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 102 / 124 Next Page
Page Background

Skali 2A

100

3.112

Litirnir í norska fánanum eru í þeim hlutföllum sem sýnd eru á myndinni.

a

Finndu hlutfallið milli flatarmáls rauða, bláa og hvíta litarins.

b

Skoðaðu myndina og finndu hlutfallið milli breiddar hvíta og bláa

borðans.

c

Finndu hlutfallið milli flatarmáls rauðu svæðanna tveggja.

d

Í fánanum er einnig fast hlutfall milli breiddar og lengdar.

Hvert er það hlutfall?

3.113

Stærð gull- og silfurhringa ákvarðast af innra þvermáli hringanna.

Taflan hér á eftir sýnir innra þvermál hrings mælt í þumlungum

og í millimetrum.

a

Notaðu hlutfallið milli mælitalnanna í töflunni

og finndu út hvað einn þumlungur er margir

millimetrar (mm) á lengd.

b

Innra þvermál hrings er 23 mm.

Hvað er það í þumlungum?

Innra þvermál hringsins

Millimetrar

Þumlungar

15,597

0,6141

15,916

0,6266

16,002

0,6300

3.114

Á sólfögrum skíðadegi voru 180 börn og fullorðnir á skíðasvæðinu.

Hlutfallið milli fjölda fullorðinna og barna var 10 : 2.

Hve mörg börn voru á skíðasvæðinu?

3.115

Alþingiskosningar á Íslandi eru hlutfallskosningar en það merkir að

atkvæðahlutfall hvers stjórnmálaflokks ræður að mestu leyti hve marga

þingmenn hann fær. Vægi atkvæða er aftur á móti misjafnt eftir kjör-

dæmum. Í Alþingiskosningunum 2013 hafði sá þingmaður sem náði

kosningu í Norðvesturkjördæmi 2.665 kjósendur á bak við sig en þing-

maður fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður hafði 4.138 kjósendur á bak

við sig.

Hvert er hlutfallið milli atkvæðis í Norðvesturkjördæmi og atkvæðis í

Reykjavíkurkjördæmi norður?

6 1 1

12

2

6

1

1

2

6

Þumlungur

kallast einnig

tomma.