Previous Page  98 / 124 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 98 / 124 Next Page
Page Background

Skali 2A

96

3.95

Ljósmynd er í stærðinni 10 cm · 18 cm.

a

Finndu hlutfallið milli styttri og lengri hliðarinnar.

b

Finndu hlutfallið milli lengri og styttri hliðarinnar.

c

Farðu eins að með mynd í stærðinni 20 cm · 25 cm og mynd

í stærðinni 30 cm · 40 cm.

3.96

Bekkjardeild með 30 nemendum framkvæmdi ýmsar kannanir.

Niðurstöðurnar eru skráðar í töfluna hér á eftir. Notaðu töfluna til að svara

spurningunum.

Finndu hve margir

Tíðni Strákar Stelpur

eiga eina eða fleiri systur

22 11 11

eru fæddir á mánaðardegi sem er slétt tala

17

7

10

stunduðu íþróttaæfingar í gær

20

8

12

eru í gallabuxum í dag

16

8

8

eru strákar

14 14

0

spenna greipar með vinstri þumalfingur yfir þann hægri

10

5

5

krossleggja handleggi með vinstri handlegg yfir þann hægri

14

4

10

eru brúneygðir

10

3

7

a

Hvert er hlutfallið milli fjölda þeirra sem fæddir eru á mánaðardegi, sem

er slétt tala, og þeirra sem eru fæddir á mánaðardegi sem er oddatala?

b

Hvert er hlutfallið milli fjölda þeirra sem stunduðu íþróttaæfingar

í gær og þeirra sem gerðu það ekki?

c

Hvert er hlutfallið milli fjölda þeirra sem eiga ekki systur og

þeirra sem eiga systur?

d

Hvert er hlutfallið milli fjölda þeirra stráka sem eru ekki í

gallabuxum og þeirra sem eru það?

e

Hvert er hlutfallið milli fjölda þeirra sem

eru brúneygðir og þeirra sem eru það ekki?

f

Hvert er hlutfallið milli fjölda þeirra sem

spenna greipar með vinstri þumalfingur

yfir þann hægri og þeirra sem spenna

greipar á hinn veginn?

g

Hvert er hlutfallið milli fjölda þeirra stelpna

sem krossleggja handleggi með hægri

handlegg yfir þann vinstri og þeirra stelpna

sem krossleggja handleggina á hinn veginn?