Previous Page  104 / 124 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 104 / 124 Next Page
Page Background

Skali 2A

102

3.120

Formúlu-1-ökuþór ók á sex km langri braut. Hann ók á misjöfnum hraða

eftir brautinni. Meðalhraðinn á fyrstu þremur kílómetrunum var 150 km/

klst., á næstu tveimur kílómetrunum var meðalhraðinn 200 km/klst. og á

síðasta kílómetranum ók hann á hraðanum 300 km/klst.

Hver var meðalhraði þessa ökuþórs á allri brautinni?

3.121

Stígur og Sunna ætla að aka frá Selfossi austur að Höfn í Hornafirði. Stígur

leggur af stað á undan og ekur á meðalhraðanum 70 km/klst. Sunna fer af

stað einum klukkutíma seinna og ekur á meðalhraðanum 75 km/klst.

Hve lengi þarf Sunna að aka áður en hún nær Stíg?

3.122

Vindhraði táknar meðalhraða vinds eftir jörðinni. Notaðu vindhraðatöfluna.

Vindhraði eftir

Beaufort-kvarða

Heiti

vindhraðans

Meðalhraði vinds

m/sek.

hnútar

km/klst.

0

Logn

< 0,2

< 1

< 1

1

Andvari

0,3

1,5

1

3

1

5

2

Kul

1,6

3,3

4

6

6

11

3

Gola

3,4

5,4

7

10

12

19

4

Stinningsgola

5,5

7,9

11

16

20

28

5

Kaldi

8,0

10,7

17

21

29

38

6

Stinningskaldi

10,8

13,8

22

27

39

49

7

Allhvass vindur

13,9

17,1

28

33

50

61

8

Hvassviðri

17,2

20,7

34

40

62

74

9

Stormur

20,8

24,4

41

47

75

88

10

Rok

24,5

28,4

48

55

89

102

11

Ofsaveður

28,5

32,6

56

63

103

117

12

Fárviðri

> 32,7

> 63

> 117

a

Hvað kallast vindhraði þar sem hraðinn er 4 m/sek.?

b

Hve langt berst vindurinn á einni sekúndu þegar rok er úti?

c

Búðu til þrjár spurningar út frá vindhraðatöflunni og leggðu þær

fyrir bekkjarfélaga þinn. Þú skalt einnig svara þremur spurningum

frá bekkjarfélaga þínum.

d

Mældu hve langt þú getur komist á einni sekúndu í samanburði við

fárviðri. Mældu vegalengdirnar úti á skólalóðinni.

e

Finndu tengslin milli hraðans í hnútum og í metrum á sekúndu.

Finndu síðan hver hraðinn 10 m/sek. er í hnútum.

Heimild:

www.vedur.is