

Kafli 3 • Mál og mælieiningar
101
3.116
Amalía gerði blöndu úr 2
l
af hreinum safa og vatni í hlutfallinu 1 : 5.
Hún drakk 2 dl af blöndunni og fannst hún vera of þunn. Hún bætti því
meiri hreinum safa í blönduna þannig að hlutfallið varð 1 : 4.
Hve miklu af hreinum safa bætti Amalía í blönduna?
3.117
Eitt karat af gulli merkir að
1
___
24
af heildarþyngdinni er gull.
Hve mörg karöt af gulli eru í hring með 585‰ af gulli?
3.118
Sjórinn inniheldur um það bil 35 g af salti á hvern lítra af vatni.
1
l
af vatni = 1 kg.
a
Hvert er hlutfallið milli massa salts og massa vatns?
b
Hver stór hluti af sjónum er salt? Skráðu svarið sem prósent og sem
prómill.
c
Hve marga lítra af sjó þarf til að vinna 1 kg af salti úr sjó?
d
Dauðahafið er enn saltara; saltið er um það bil 30%. Hve mikið salt er þá
í 1 lítra af sjó?
e
Hvert er hlutfallið milli saltmagns í venjulegum sjó og saltmagnsins í
Dauðahafinu?
f
Hve miklu salti þarf að bæta við í 1
l
af sjó til að saltinnihaldið nálgist
það sem er í Dauðahafinu?
3.119
Marteinn á von á gestum. Hann býr til til 2
l
af bláberjablöndu úr hreinum
bláberjasafa og vatni. Blandan er í hlutfallinu 1 : 4. Hann hellir 2 dl í hvert
glas handa fyrstu tveimur gestunum. Þegar þeir hafa smakkað á blöndunni
benda þeir á að hún sé of þunn. Hann hefði átt að gera blönduna í
hlutfallinu 1 : 2.
Hve miklu af hreinum bláberjasafa þarf Marteinn að bæta í blönduna til að
hún verði í hlutfallinu 1 : 2?