

Skali 2A
92
Samsettar einingar og
hlutfallstölur
3.74
Á fjölskyldutónleikum eru 40 strákar, 30 stelpur, 60 konur og 70 karlar.
a
Hvert er hlutfallið milli fjölda stelpna og stráka?
b
Hvert er hlutfallið milli fjölda karla og kvenna?
c
Hvert er hlutfallið milli fjölda barna og fullorðinna?
3.75
Notaðu teikninguna af kúlunum hér fyrir neðan.
a
Hvert er hlutfallið milli fjölda rauðra og grænna kúlna?
b
Hvert er hlutfallið milli fjölda grænna og rauðra kúlna?
3.76
Þegar búin er til plómusulta er þyngdarhlutfallið milli plómna og
sykurs 2 : 1. Eitt árið fengust 13 kg af plómum úr garði nokkrum.
Hversu mikinn sykur þurfti til að búa til plómusultu úr öllum plómunum?
3.77
Teiknaðu kúlur í tveimur mismunandi litum sem sýna hlutföllin hér á eftir:
a
hlutfallið 2 : 5
b
hlutfallið 3 : 4
c
hlutfallið 7 : 2
3.78
Í bekkjardeild nokkurri eru 24 nemendur. Í töflunni hér til hliðar eru upp-
lýsingar um nemendurna. Notaðu töfluna og finndu hlutfallið milli fjölda
a
nemenda í bláum buxum og nemenda sem eru ekki í bláum buxum
b
nemenda með brún augu og nemenda með annan augnlit
c
stelpna með brún augu og stráka með brún augu
d
nemenda sem æfa fótbolta og nemenda sem ekki gera það
e
Styttu öll svörin í a-d eins mikið og hægt er.
Strákar Stelpur
Bláar buxur
8
6
Brún augu
6
10
Æfa fótbolta
7
5