

Kafli 3 • Mál og mælieiningar
95
3.90
Þú keyptir veiðistöng í Svíþjóð. Stöngin kostaði 995 SEK.
Notaðu töfluna hér á eftir og finndu verðið í íslenskum krónum (ISK).
Gjaldmiðill
Gengi (sala)
9.8.2015
1 DKK (dönsk króna)
19,75
1 SEK (sænsk króna)
15,33
1 GBP (enskt pund)
208,11
1 EUR (evra)
147,4
1 USD (Bandaríkjadollar)
134,5
Heimild:
www.islandsbanki.is3.91
Skíði kosta 75 000 ISK. Notaðu gengistöfluna hér á undan,
veldu tvenns konar mynt og finndu verðið á skíðunum í þeim myntum.
3.92
Notaðu netið og finndu gengi dagsins á evru, ensku pundi og
Bandaríkjadollar.
Búðu til einfalda reglu til að styðjast við ef þú þarft að nota þessar þrjár
mynttegundir.
3.93
Hvert er gengið?
a
Hjólabretti kostar 15 800 ISK; þetta samsvarar 1030 SEK.
b
Reiðhjól kostar 79 800 ISK; þetta samsvarar 633 USD.
c
Skíðastafir kosta 23 800 ISK; þetta samsvarar 161 evru.
d
Trampólín kostar 51 000 ISK; þetta samsvarar 245 enskum pundum.
3.94
Leikjatölva kostar á Íslandi 79 400 kr. með flutningskostnaði. Í Englandi
kostar hún 320 £ með flutningskostnaði. Gengi ensks punds er 208 kr.
Hver er verðmunurinn á leikjatölvunum?
75000 ISK.
995 SEK.