

Kafli 3 • Mál og mælieiningar
91
3.70
Tengdu saman mælitæki, það sem mæla skal og viðeigandi mælieiningar.
Gott er að tveir bekkjarfélagar ræði saman um þetta verkefni.
Mælitæki
Það sem mæla skal
Mælieining
hitamælir
hraði
paskal
klukka
jarðskjálfti
lítri
hraðamælir
massi
Richters-kvarði
jarðskjálftamælir
þrýstingur
kg
lítramál
hiti
klukkustundir
loftvog
tími
Fahrenheit
vog
rúmmál
km/klst.
3.71
Ólöf þarf að byggja 8,3 m langan og 1,8 m háan
vegg. Áður en hægt er að steypa vegginn þarf að
búa til grind úr lóðréttum plönkum. Plankarnir eru
ekki jafn breiðir (10 cm ± 1 mm).
a
Hve margra metra af plönkum þarf Ólöf að kaupa til að geta byggt
grindina? Hver er mesta lengd planka sem hún þarf að kaupa?
b
Ólöf reiknar með um það bil 10% rýrnun byggingarefnisins vegna þess
að einhverjir plankanna eru ekki nógu langir. Hvað reiknar Ólöf með að
plankarnir muni kosta alls ef hver lengdarmetri kostar 320 kr.?
3.72
Þegar skeiðklukka er notuð við stuttar vegalengdir er erfitt að mæla af
nákvæmni. Þess vegna er sama tilraun endurtekin nokkrum sinnum og
niðurstöðurnar bornar saman.
a
Þegar við sleppum múffuformi úr nokkurri hæð nær það allfljótt jöfnum
hraða. Taktu tímann á múffuformi sem svífur frjálst úr ákveðinni hæð
niður á gólf.
b
Gerðu töflu og endurtaktu tilraunina að minnsta kosti tíu sinnum.
c
Skoðaðu niðurstöðurnar og segðu til um hve langan tíma múffuformið
var á leiðinni niður á gólf. Hvernig fannstu svarið?
d
Hvaða villandi upplýsingar geta skekkt niðurstöðurnar?
3.73
Hvaða áhrif hafa ónákvæmar lengdarmælingar á rúmmálið hér á eftir?
Finndu talnabilið sem rúmmálið getur verið á.
a
Þegar villa nemur ±2 mm við mælingu allra hliða mjólkurfernu þar sem
rétt mál er 7,0 cm · 7,0 cm · 20,4 cm.
b
Þegar villa nemur ±5 cm við mælingu allra hliða geymis þar sem rétt
breidd á að vera 2,35 m, rétt hæð 2,39 m og rétt lengd 5,90 m.
8,3 m
1,8 m