

Skali 2A
90
3.67
Settu fram fimm fullyrðingar um mælingar í kennslustofunni. Kynntu
fullyrðingarnar fyrir bekkjarfélaga þínum. Ræðið saman og reynið að
komast að samkomulagi um hvort mælingarnar eru nákvæmar eður ei.
3.68
Til að geta notað líkamann sem mælitæki er gott að þekkja helstu mál
eigin líkama.
a
Skrifaðu töfluna upp og búðu til viðbótardálk fyrir lengdarmál.
Mældu og skráðu eigin líkamsmál.
Líkamsmál
Lýsing
Fet
lengd iljar þinnar
Spönn
fjarlægðin frá broddi þumalfingurs til brodds litlafingurs
þegar fingurnir eru glenntir út
Faðmur
fjarlægðin frá fingurbroddi til fingurbrodds þegar þú
breiðir út faðminn
Skref
venjuleg skreflengd
Þumlungur
breidd þumalfingurs við naglrótina
Alin
lengd framhandleggs frá olnboga að broddi löngutangar
b
Notaðu þessi líkamsmál til að mæla fimm fjarlægðir, bæði þær
sem eru í styttra lagi og aðrar sem eru nokkuð lengri.
c
Kannaðu fjarlægðirnar með málbandi eða reglustiku. Finndu hversu
nákvæmlega þú gast mælt með líkamsmáli þínu.
3.69
Hve margir markverðir tölustafir eru í mælitölunum sem skráðar
eru á staðalformi hér á eftir?
a
Flatarmál Kyrrahafsins er 1,797
·
10
8
km
2
.
b
Í Atlantshafinu eru 4,1
·
10
17
m
3
af sjó.
c
Nokkrar bakteríur eru 1,0
·
10
−6
m á lengd.