

Kafli 3 • Mál og mælieiningar
79
3.22
Hvað er klukkan?
a
3,25 klst. fyrir kl. 00:13
b
2,75 klst. eftir kl. 23:28
c
3,25 klst. fyrir skólabyrjun
d
2,75 klst. eftir skólabyrjun
e
3,3
—
klst. fyrir kl. 01:40
f
6,6
—
klst. eftir kl. 22:45
3.23
Notaðu töfluna hér á eftir yfir flóð og fjöru á Eyrarbakka.
Tími
6. ágúst 2015
Sentimetrar yfir meðal-
stórstraumsfjöru
03:59
20
10:14
250
16:23
40
22:42
240
Heimild: Admiralty EasyTide
a
Hve langur tími líður milli tímasetninganna þegar fjara var þennan dag?
b
Líður jafn langur tími milli fjöru og flóðs í bæði skiptin?
c
Hve langur tími líður frá síðara flóði þennan dag til miðnættis?
3.24
Notaðu töflureikni til að búa til „heimsklukku“ sem finnur tímann í einu
landi í hverri heimsálfu. Veldu eitt land úr hverri af heimsálfunum fimm:
Asíu, Afríku, Suður-Ameríku, Norður-Ameríku og Eyjaálfu. Finndu í hvaða
tímabelti landið er. Formúlurnar þurfa að vera þannig að allar tíma-
setningarnar breytist sjálfkrafa ef þú breytir tímasetningunni á Íslandi.
3.25
Á flugmiðanum Ósló-New York stendur að brottför
sé kl. 18:00 og komutíminn 20:00. Flugtíminn er
nákvæmlega átta klukkustundir. Hve mörg tímabelti
eru milli Óslóar og New York?
3.26
Sandra og Arnulf fljúga frá Ósló til Seattle með
viðkomu í New York. Seattle liggur í tímabelti −8.
Ósló er í tímabelti +1. Allir flugtímar hér á eftir sýna
staðartíma.
Flugtími:
Ósló–New York kl. 11:25 − kl. 14:00
New York–Seattle kl. 17:46 − kl. 21:02
Hve langan tíma tekur öll ferðin að meðtöldu stoppinu í New York?
Meðalstór-
straumsfjara
Flóð og fjara eru
miðuð við meðal-
stórstraumsfjöru
á hverjum stað.