

Kafli 3 • Mál og mælieiningar
81
3.30
Athugaðu með reikningi hvort fullyrðingarnar eru sannar eða ósannar.
Peningar
Massi
Fimmhundruðkall
1 g
Krónupeningur
4 g
Fimmkall
5,6 g
Fimmtíukall
8,25 g
a
Þú getur borið þyngd 20 000 000 króna í fimmhundruðköllum.
b
Þú getur borið þyngd 20 000 króna í krónupeningum.
c
Þú getur borið þyngd 30 000 króna í fimmköllum.
d
Þú getur borið þyngd 60 000 króna í fimmtíuköllum.
3.31
Notaðu töfluna. Reiknaðu með slumpreikningi og skráðu lengdirnar
í sentimetrum eða metrum.
a
2 tommur
b
6 fet
c
6 faðmar
d
10 álnir
e
20 faðmar
f
10 tommur
g
20 álnir
h
100 faðmar
i
15 fet
3.32
Eitt fet er 30,48 cm. Finndu hæð fljúgandi hlutanna hér
á eftir í metrum yfir jörðu.
a
Loftbelgur
115 000 fet
b
Helíum-blaðra
3300 fet
c
Smáflugvél
8000 fet
d
Gæs
20 000 fet
e
Leiguflugvél
32 000 fet
f
Blaðra með heitu lofti
650 fet
3.33
Grýla var ólöt við að strokka og búa
til smjör handa Leppalúða sínum.
Ein jólin notaði hún 8 potta af rjóma
til að búa til 4 merkur af smjöri. Var
nýtingin á rjómanum góð hjá Grýlu?
3.34
Tveir vinir deildu um hvor hefði farið í lengri ferð. Annar þeirra sigldi bát
og hinn ók bíl. Stýrimaður bátsins sagði að hann hefði farið 183 sjómílur
(1 sjómíla = 1852 m) á bátnum. Bílstjórinn sagðist hafa ekið 418 km á
bílnum. Sýndu með reikningi hvor vinanna fór lengri vegalengd.
1 tomma = 2,54 cm
1 alin = 62,75 cm
1 fet = 30,48 cm
1 faðmur = 188 cm
1 pottur er um það bil 1
l
1 mörk er 250 g
1 lítri af rjóma vegur um það bil 1 kg