

Kafli 3 • Mál og mælieiningar
85
3.48
a
Notaðu ensku rúmmálseiningarnar í töflunni. Reiknaðu með
slumpreikningi og finndu rúmmálið.
• 4 gallon og 2 pints
• 5 gallon og 2 quarts
• 3 gallon, 2 quarts og 3 pints
b
Hver eru tengslin milli pint og quart?
c
Hver eru tengslin milli pint og gallon?
3.49
Biblían var fyrst gefin út á íslensku árið 1584, prentuð á Hólum í Hjaltadal
hjá Guðbrandi biskupi Þorlákssyni. Á dögum Guðbrands biskups jafngiltu
4 ríkisdalir kýrverði. Reiknað er með að kýrverð nú á dögum (árið 2015) sé
113 000 kr.
a
Ódýrasta gerð Biblíu kostaði átta danska ríkisdali. Hvert var þá verðgildi
Guðbrandsbiblíu árið 1584 í núgildandi krónum?
Danskir ríkisdalir voru notaðir á Íslandi til 1875. Þá tóku við
krónur
og
jafngiltu tvær krónur hverjum ríkisdal. Íslendingar notuðu þessar
gömlu
krónur til ársins 1981.
b
Gerðu ráð fyrir að verðgildi peninganna hefði ekkert breyst og Biblía frá
Biblíufélaginu hefði verið seld árið 1980 á sama verði og Guðbrandur
biskup seldi sína Biblíu. Hvað hefði Biblía, útgefin árið 1980, þá kostað
í krónum?
Árið 1981 var krónunni breytt þannig að ein
nýkróna
kom í stað
100 gamalla króna. Krónur, sem við notum núna, eru nýkrónur.
c
Breyttu svarinu í b-lið í nýkrónur. Hvað hefði Biblía árið 1981 kostað
í nýkrónum ef verðgildi peninganna hefði ekkert breyst frá því á tímum
Guðbrands biskups?
3.50
a
Jón Sigurðsson bjó við óvissar tekjur en fékk meðal annars styrk til
ritstarfa frá enskum auðmanni. Árið 1872 fékk Jón Sigurðsson senda
til Kaupmannahafnar frá Englandi 63 ríkisdali. Hvað ætli það jafngildi
mörgum krónum á núverandi verðlagi?
b
Árið 1871 kom til Íslands danskur prófessor, Johnstrup að nafni, til að
skoða hvort nýta mætti brennistein í brennisteinsnámum í Þingeyjar-
sýslu. Ferðakostnaður hans var greiddur úr landssjóði Íslands, alls um
553 ríkisdalir. Hvað var þetta mikill kostnaður á núverandi verðlagi.
c
Úr landsjóði 1871 var greiddur styrkur handa kvenmanni frá Íslandi til
þess að nema ostagerð í í Danmörku, að upphæð 40 ríkisdalir. Hvað var
styrkurinn hár á núverandi verðlagi?
gallon = 4,544
l
pint = 0,568
l
quart = 1,136
l
pint kallast á
íslensku hálfpottur