

Kafli 3 • Mál og mælieiningar
89
3.64
Finndu hvaða mælitæki á best við þegar þú átt að
a
taka tímann í 60 metra spretthlaupi
b
mæla einn fermetra af skólalóðinni
c
mæla fjarlægðina frá Ísafirði til Blönduóss
d
finna rúmmál steins
e
mæla þyngd þína
f
vigta gullhring
g
vigta fisk
3.65
Notaðu þrenns konar mælitæki til að mæla fjarlægð að eigin vali. Berðu
saman mælitölurnar. Veldu aðra fjarlægð og endurtaktu leikinn. Gerðu töflu
eins og þá sem er hér fyrir neðan og skráðu niðurstöðurnar í hana.
Mælitæki 1
Mælitæki 2
Mælitæki 3
Fjarlægð 1
Fjarlægð 2
Leggðu mat á hvað er hentugasta mælitækið til að mæla þessar tvær
mismunandi lengdir.
Rökstyddu svarið.
3.66
Lögreglan notar leisermæli til að mæla hraða. Til öryggis eru þessir mælar
látnir draga 3 km/klst. frá til að forðast að mælirinn sýni of mikinn hraða.
Bílstjóri nokkur er stöðvaður í hraðaeftirliti lögreglu á svæði þar sem aka
má á hraðanum 30 km/klst.
a
Hver er mesti hraðinn sem bílstjórinn getur hafa ekið á ef sektin var
15000 kr.?
b
Hve mikið þarf bílstjórinn að borga í sekt ef hann ók raunverulega á
hraðanum 58 km/klst.?
Yfir hámarkshraða
Sektarupphæð á svæði með
hámarkshraða 30 km/klst.
til og með 5 km/klst.
0 kr.
6—10 km/klst.
5000 kr.
11—15 km/klst.
10 000 kr.
16—20 km/klst.
15 000 kr. + 1 refsipunktur
21—25 km/klst.
20 000 kr. + 2 refsipunktar
26—30 km/klst.
25 000 kr. + 3 refsipunktar
31—35 km/klst.
45 000 kr. og ökuleyfissvipting í 3 mán.+ 3 refsipunktar
Heimild:
www.samgongustofa.is