

Skali 2A
86
Nákvæmni og námundun
3.51
Hverjar eftirfarandi talna eru alveg nákvæmar og hverjar eru ónákvæmar?
a
Talið var að þátttakendur í Gleðigöngunni í ágúst 2015, sem var
hápunktur Hinsegin daga, hafi verið 75 000.
b
Gistinætur á hótelum á Íslandi árið 2014 voru 2 307 314.
c
Frá Egilsstöðum til Reykjavíkur eru 634 km.
d
Siglingakeppnin „Shetland race“ tók 33 klst. og 49 mín.
e
Strandlengja Mexíkó er 9330 km á lengd.
f
Alls 24 lönd hafa strandlengju sem liggur að Miðjarðarhafinu.
3.52
Mældu nokkrar lengdir á líkama þínum.
a
Mældu og skráðu lengdirnar
• frá hvirfli til höku
• frá höku til nafla
• frá nafla til hnés
• frá hné til iljar
b
Mældu hæð þína.
c
Er summa mælitalnanna í a-lið og mælitalnanna í b-lið sú sama?
Hvers vegna? Hvers vegna ekki?
3.53
Á Íslandi er minnsta mynteiningin 1 kr. Þegar við staðgreiðum í verslun
er verðið því oft námundað. Finndu talnabilið sem eftirfarandi upphæðir
gætu hafa verið námundaðar úr.
a
160 kr.
b
240 kr.
c
1250 kr.
d
300 kr.
e
390 kr.
f
1100 kr.
3.54
Í Danmörku er minnsta mynteiningin 50 aurar. Við staðgreiðslu í verslun
er verðið því námundað að næstu 50 aurum. Finndu talnabilið sem
eftirfarandi upphæðir gætu verið námundaðar úr.
a
65 DKK
b
34 DKK
c
125 DKK
d
136,50 DKK
e
267,50 DKK
f
1257,50 DKK