Previous Page  111 / 124 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 111 / 124 Next Page
Page Background

Kafli 3 • Mál og mælieiningar

109

3.148

Sýndu hugkvæmni og veldu mælitæki og mælingaraðferð til að mæla

sem nákvæmast.

a

Tímann sem það tekur að hoppa um það bil 20 cm upp og

koma niður aftur á sama stað.

b

massa teiknibólu

c

rúmmál sogrörs

d

massa róðrarbáts

e

tímann sem það tekur að taka mynd

3.149

Bronsstytta inniheldur blöndu af málmunum kopar,

tini, sinki og blýi. Bronsið, sem notað er í stytturnar í

Vigelands-garðinum í Ósló, er þannig samsett: 90%

kopar, 6% tin, 2% sink og 2% blý. „Reiði drengurinn“ er

ein af bronsstyttunum í garðinum og hún vegur 40 kg.

Finndu hlutfallið milli massa hinna fjögurra mismunandi

málma í styttunni.

3.150

Notaðu töflureikni og vöffluuppskriftina hér á eftir

sem er fyrir átta vöfflur.

Vöfflur

4 dl hveiti

4 dl mjólk

5 egg

100 g bráðið smjör

5 msk. sykur

1 tsk. kardemommuduft

a

Búðu til formúlu sem reiknar út efnismagnið til að búa til

tiltekinn fjölda vafflna.

b

Notaðu töflureikninn til að búa til vöffluuppskrift sem býr til tvær

vöfflur handa hverjum nemanda í 28 nemenda bekkjardeild.

c

Notaðu töflureikninn til að finna hve margar vöfflur fást ef notaðir

eru 25 dl af hveiti.

d

Finndu hlutfallið milli mjólkur í uppskrift fyrir 100 vöfflur og

í uppskriftinni fyrir átta vöfflur.

„Reiði drengurinn“ („Sinnataggen“)

er eftir Gustaf Vigeland (1863−

1943). Styttan er 83 cm á hæð.

Hún hefur oft orðið fyrir barðinu á

skemmdarvörgum og henni hefur

oft verið stolið en alltaf verið sett

upp aftur.