Previous Page  16-17 / 83 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 16-17 / 83 Next Page
Page Background

16

17

Námsgagnastofnum 2015

07011

EÐLIS- OG STJÖRNUFRÆÐI

2

Efni kaflans

2.1

Kraftar – ósýnilegir en hafa áhrif.

2.2

Orka og mismunandi orkuform.

2.3

Einfaldar vélar.

Kraftar og orka

Markmið

Nemandi á að

… þekkja dæmi um nokkra áhugaverða krafta.

… þekkja áhrif sem kraftar geta haft.

… þekkja nokkur dæmi um mismunandi form orku.

… skilja hvernig einfaldar vélar koma að gagni.

Hvernig auðvelda

trjáklippur manni að

klippa sundur sverar

greinar?

Af hverju er

auðveldara að ýta

þungum hlut upp

skáborð heldur en bera

hann upp tröppur?

Hvers vegna eru

hjólbörur gagnlegar

við að flytja þunga

hluti?

Stærsti loftsteinn sem fundist hefur nefnist Hoba-loftsteinninn eftir

sveitabæ í Namibíu í suðurhluta Afríku. Áætlað er að hann vegi um

66 tonn sem er meira en 6 fullvaxnir Afríkufílar. Steinninn fannst fyrir

tilviljun árið 1920 þegar bóndi var að plægja akur. Hann er svo þungur

að ekki hefur verið gerð tilraun til þess að flytja hann frá þeim stað þar

sem hann fannst. Á hverju ári koma mörg þúsund ferðamenn til þess

að skoða loftsteininn.

Vissir þú að

… flestar stjörnur sem við sjáum á himninum eru

sólstjörnur eins og sólin okkar en samt af ýmsum

stærðum og gerðum?

… í vetrarbrautinni okkar eru um 200–400 milljarðar

sólstjarna.

… tunglmyrkvi sést frá allri næturhlið jarðar en sólmyrkvi

sést aðeins frá litlu svæði á daghliðinni (sjá mynd).

… svartholið í miðju vetrabrautar okkar hefur massa sem er

yfir þrem milljón sinnum meiri en massi sólarinnar.

Geimfarar í rússnesku geimstöðinni MIR fylgdust

með sólmyrkva utan úr geimnum árið 1999.

Hoba-loftsteinninn er úr járni og vegur um 66 tonn.

Vísindamoli