

Kafli 1 • Talnareikningur
41
1.197
Geymslubox er í laginu eins og teningur og rúmar 8 lítra.
Hvað er hliðarbrún hans margir sentimetrar?
1.198
Á vinnustað nokkrum, þar sem unnu 18 manns, fékk hver starfsmaður
eitt árið bónus sem nam 86 400 kr. vegna hagnaðar í fyrirtækinu og
5‰ af hagnaðinum var skipt jafnt milli allra starfsmanna.
Hver var hagnaðurinn þetta árið?
1.199
Reiknaðu eftirfarandi dæmi út frá tölunni 5,8 ∙ 10
18
.
a
Finndu tölu sem er tvöföld talan.
b
Finndu tölu sem er þreföld talan.
c
Finndu 10% af tölunni.
d
Finndu tölu sem er mismunur milli tölunnar og 5,8 ∙ 10
17
.
e
Finndu 3‰ af tölunni.
f
Finndu ferningstölu tölunnar.
g
Finndu teningstölu tölunnar.
1.200
Tvær verslanir eru með tilboð á öllum vörum.
Tískuhöllin
(allar vörur: −20%)
Nýjasta tíska
(allar vörur: −15%)
Dúnjakki
75 500
71 580
Gallabuxur
25 800
23 980
Húfa
13 980
11 580
Bakpoki/taska
17 980
17 980
Peysa
11 980
10 980
a
Hugsaðu þér að þú ætlir að kaupa eitt eintak af hverri vöru í töflunni.
Notaðu töflureikni og finndu hvor verslunin er með betra tilboð í heild.
b
Þú áttar þig skyndilega á að þú þarft að kaupa eina
tösku í viðbót í afmælisgjöf handa mömmu.
Í hvorri búðinni er þá betra tilboð í heild?
c
Þú ætlar að kaupa hverja vöru þar sem hún er ódýrari.
Gerðu yfirlit yfir í hvorri verslun þú kaupir hverja vöru
og hvað þú borgar samtals.