

Skali 2A
40
1.193
Taflan hér á eftir sýnir massa átta reikistjarna og fjarlægð þeirra frá sólu.
Mæla má fjarlægðir í geimnum á mismunandi vegu. Til að bera fjarlægðir
saman er oft notað hugtakið stjarnfræðieining þar sem ein
stjarnfræðieining er meðalfjarlægðin milli jarðar og sólar.
a
Notaðu töflureikni og finndu fjarlægðina milli sólar og hinna
reikistjarnanna skráða í stjarnfræðieiningum.
b
Notaðu töflureikni og finndu heildarmassa allra reikistjarnanna
átta skráðan í tonnum.
Massi (kg)
Fjarlægð frá sólu (km)
Merkúríus
3,302E+23
57 909 176
Venus
4,8685E+24
108 200 000
Jörðin
5,9736E+24
150 000 000
Mars
6,4185E+23
227 939 100
Júpíter
1,8986E+26
778 000 000
Satúrnus
5,6846E+26
1 400 000 000
Úranus
8,681E+25
3 000 000 000
Neptúnus
1,0243E+26
4 500 000 000
1.194
Reikna má út rúmmál kúlu með formúlunni
V
=
4π
r
3
____
3
.
Inflúensuvírus er kúlulaga og hefur þvermálið 80−120 nm.
Notaðu staðalform og finndu rúmmál vírussins mælt í teningsmetrum.
1.195
Þú setur einn dropa af sápu í uppþvottavatnið. Einn dropi er um
það bil 0,05 ml. Vaskurinn er 520 mm langur og 380 mm breiður.
Vatnið í vaskinum er 10 cm djúpt.
Hve mörg prómill af sápu eru í uppþvottavatninu?
1.196
Hve mörg prósent er verðhækkunin?
a
Í nóvember 1970 var verð á bensínlítra 13,30 kr. Í nóvember 2013
var bensínverðið 245,75 kr.
b
Myndablað nokkurt kostaði 10 krónur árið 1948. Árið 2013
kostaði blaðið 798 kr.
c
Árið 1970 kostaði bíómiði 15 kr. Árið 2013 kostaði hann 1299 kr.
1 nm =
1
·
10
-9
m